Skinfaxi - 01.03.1917, Blaðsíða 1
Hlutverk ,Vermannanna“
Ungmennafélögin liafa nú starfað hér á
landi i rúm tíu ár. Þau hal'a að meira
eða minna ieyti náð fótfestu í tlestum
sveitum landsins. Minni hefir framförin
orðið i kauptúnunum. Ástæðan sú, að
kauptúnalifið hefir alt fram til þessa verið
óhagstætt hugsjónalifi,og því skort jarð-
veginn þar. En á þessum liðnu árum
hafa ungmennafélögin sýnt ótvirætt, að
þau eiga erindi til mikils hluta þjóðarinn-
ar. Þau geta verið œskulýðskóli sem
eflir félagsmewningu. Á árunum frá
fermingaraldri og fram yfir tvítugt er vor-
gróður i mannlífinu. Þá dreymir unga
menn og ungar konur stóra drauma. Þá
eru bygðar skýjahorgir. Þá er starfshugur-
inn og sfarfslöngunin mest. Þá verður
unga fólkið að hafa viðfangsefni við sitt
hæfi. Annars stirðna hæfileikarnir, og
mennirnir ná ekki fullum þroska. Æsku-
árin verða í endurminningunni dauð eins
og eyðisandur.
Menn skilja best nauðsyn æskumanna-
samtakanna með því að athuga þær fé-
lagskröfur, sem heilbrigt ungt fólk gerir,þar
sem það er ekki læst í fjötur langvarandi
kyrstöðu. Unga fólkið vill vinna, en það
hefir fleiri áhugamál. Það vill koma sam-
an á mannfundi við og við. Sumir hafa
áhuga á íþróttum, einni eða fleirum, oft
mörgum. Aðrir hafa gaman af söng,
kappræðum og ritdeilum. Og flestir hafa
gaman af dansi. Hér eru nefndir nokkrir
Sambandsþing U. M. F. í.
verður haldið í Reykjavík 14. júní n. k.
Byrjar kl. 12 á hádegi.
Meðal annara mála verða þessi tekin
til umræðu:
Fjárhagur sambandsins.
Fjárlög til næsta sambandsþings.
Efling ungm.fél.skaparins.
íþróttir.
Skógrækt.
Stjórnarkostning.
Sambanástjórnin.
þræðir úr áhugamálavef æskunnar. Ung1
mennafélögin hafa nokkurn veginn fullnægt
þessum kröfum, og ættu að geta það bet-
nr hér eftir, því að reynslan hefir vísað
til vegar. Gott ungmennafélag á að hafa
fjölbreytileg viðfangsefni. Það á að vera
sameiginlegt heimili félagsmanna. Það á
að koma þar til sögunnar, sem heimilin
náekki til. Hversdagslega er vintian, daglegu
störfin, en þó einhverjar tómstundir. Þær
heyra undir veldi félagsins. Þá grípa þeir
bókhneigðu bók úr safni félagsins. Iþrótta-
maðurinn, karl eða kona, æfir sig eftir
föngum, býr sig undir kappleiki við sína
jafningja. Einu sinni á mánuði er fundur.
f'élagið á fundarhús, ef til vill þannig gert
að þar megi sýna einfalda sjónleiki og
æfa sumar íþróttir. Þar er geymt bóka*
safnið, hið andlega forðabúr sveitarinnar.
Fundirnir eru tvennskonar. Stundum
lokaðir, eingöngu fyrir félagsmenn. Stund‘