Skinfaxi - 01.03.1917, Qupperneq 8
24
SKINFAXI
mm
úður en spyrnt er, því betra er fyrir
framherja að taka á móti knettinum i
loftinu, fyrir framan markið, en með jörð-
inni, þar sem mótherjar eru flestir til varn-
ar. Þá ber hornspyrnumanni að spyrna
kneltinum með þeim fœtinum sem fjær er
endamörkum. Sé hornspyrna rösklega
framin, er hægra fyrir framherjana að
skalla knöttinn í mark. Atrennuspyrnur
getur maður kallað auka- horn- og vítaspyrn-
urnar, því leikmenn eiga aldrei að taka
alrennu við aðrar spyrnur í leiknum, er
það ljótt og tefur leikinn, og sú sveit er
það notar, tapar ílestum bestu tækifærun-
um vegna þessara aukaatrenna, með þeim
verður leikurinn aldrei fjörugur. — Skessu-
spyrnur skulu bakverðirnir temja sér, það
er að spyrna upp og aftur yfir höfuð sér
(half vollage) — og framkvæmt á þann
hátt, að leikmaður spyrnir, ofan til með
ristinni, undir knöttinn við upprás hans,
og hallar sér áfram. — Flýtir, áræði,
snarræði, liðleiki og leikni, það eru þeir
eiginleikar sem koma að bestu liði í knatt-
spyrnukappleik. Af krafti verður að spyrna
á mark, ef árangur skal verða nokkur.
Breytið nú til knattspyrnumenn og not-
ið nú hér eftir meira ristarspyrnur, —
æfið þær skynsamlega. — Þið vítaspyrnu-
menn spyrnið á markið meira á vinstri
hönd markverði, því þar er hann veikast-
ur fyrir, en þó má þetta ekki verða að
reglu, því þá mun bakvörðurinn vara sig
fljótt á því.
FélagsmáL
Fyrirlestraferðlr:
Því miður gat Jónas Þorbergsson eigi
komist til félaganna á Ausurlandi, svo
sem til var ætlast. Hann veiktist af
lungnabólgu á austurleið, og verður ekki
fær til langferða í vetur.
Húnvetningar og Dalanieiin
hafa mælst til, við sambandsstjórn, að
sendir yrðu fyrirlestramenn, um þau hér-
uð í vetur. Talið liklegt að það mundi
flýta fyrir |>ví, að félögin á þessum slóð-
um gengju í sambandið. Vegna dýrtíðar
og fjárkreppu varð ekki við þessu snúist,
að sinni, en sambandsstjórnin hefir mikinn
áhuga á því, að senda góða fyrirlestra-
menn um þessi héruð og önnur sem líkt
er ákomið með, jafnskjótt og kringum-
stæður leyfa.
Skinfaxi.
Dráttur sá, sem orðið hefir á útkomu
blaðsins, stafar af örðugleikum við papp-
írsaðflutninga.
Auk þeirra félag-n
er kvittað var fyrir í janúarblaðinu,
hafa þessi félög gert skil til fjórðungs-
stjórnar Sunnlendinga:
IJ.M.F. Biskupstungna
— Skeiðamanna
— Eldborg
— Stokkseyrai
— Brúin
— Borgarhrepps
— Stafholtstungna
— Óðinn
— Akraness
27. _ 4. — 1917.
Fjórðungsstjórnin.
Aðalfundur.
Tóbaksbindindisfélaga íslands verður
haldinn f Rvík 14. júní n. k.
Stjórnin-
Ritstóri: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Félagsprentstniðjan