Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.1917, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.05.1917, Qupperneq 6
38 SKINFAXI hendur úr vegi. Til þess þarf óskiftan mátt heillar þjóðar. Vitaskuld verður altaf skoSanamunur um stefnuskrá viðtækra félagsheilda. Svo er og um skuldbindingaskrá ungmennafé- laganna. En þau tvö atriðin, sem mest er haft á móti, kristilegi grundvöllurinn og bindindisheitið, hefir reynslan helgað. Það væri misskilningur að halda því fram, að ungmennafélagsskapur væri sama og félag æskumanna. Þau eiga ekki er- indi til annara en þeirra, sem hafa til brunns að bera álvöru og áhuga, þeirra sem vilja vinna að því að tvö strá vuxi, þar sem áður var eitt. Annað skilyrðið krefur af félagsmönnum, að þeir sýni sidlega álvöru í orði og verki, hitt að þeir sneiði hjá áfengisnautn. Síðara at- riðið leiðir af hinu fyrra, og er eitt af ótalmörgum, sem í því felast. Áhugasömu mennirnir hafa svo margt um að hugsa og við að glíma, að þeir komast ekki til að fást við víndrykkju. Hins vegar er það vanaviðkvæði hjá þeim, sem ekki vilja bindindi, í skuldbingaskránni, að það sé ekki af því að þeir ætli að drekka vín, heldur af þvi, að þeir vilji hafa rétt til þess, ef þá langar til. Og þetta frelsi á að vera svo dýrmætt, að þess vegna megi ekki vinna að bindindi í ungmennafélög- unum. Fáir verða til að trúa þessari rökfærslu. Þeim einum þykir vænt um að hafa réttinn til víndrykkju óskertan, sem vilja vera við því búnir að geta fært sér hann í nyt. lléraössamböudiu. Reynslan er farin að skera úr því, að í verki reynast héraðssamböndin betur en fjórðungarnir gömlu, eiga betur við lands- hætti og ástæður. Þegar héraðssamband var stofnað í Múlasýslum, bættust 4 ný félög við í sambandið, og er von á fleir- um. í Skaftafellssýslum báðum bættust télög við, þegar unt var að koma þar á sýslusamböndum. A Norðurlandi var fjórðungssambandið aldrei nema tómt nafn; var i verki héraðssamband Eyfirðinga og blómgaðist vel á þeim grundvelli. Og meiri líkur eru til að félögin í hinum þrem- ur sýslum Norðurlands mundu nú vera í sambandi U. M, F. I., ef kostur hefði ver- ið á því frá upphafi, að koma við héraðs- samböndum, sem ein áttu þar við stað- hætti. Umtal var í vetur sem leið að sambandið sendi Húnvetningum fyrirlestr- armann, en fórst fyrir, vegna harðindanna og mannleysis. Hefði sambandið haft á að skipa föstum starfsmanni, mundu Hún- vetningar hafa fengið fyrirlestra og - sambandið Húnvetninga. Iþróttlr og- víuuautu. Hvar sem íþróttir eru iðkaðar, í heitum löndum og köldum, er algert bindindi eitt af þeim skilyrðislausu boðorðum, sem hver sá maður er gerir sér von um fremd og sigur, verður að beygja sig fyrir. Á- stæðan er auðsæ. Reynslan hefir sýnt og sannað að vínið veiklar líkamann, jafnvel þótt í hófi sé drukkið. Nú eru þessi sannindi orðin svo alviðurkend, að enginn ber við að neita þeim. En afleiðingin er auðsæ fyrir ungmennafélögin. Þau vilja vera íþróttafélög, að því leyti sem það er samrýmanlegt efnum og ástæðum félags- manna. Og samt halda sumir menn, að þau þurfi ekki að vera bindindisfélög sam- hliða, skilja ekki sambandið sem er á milli þessara tveggja hluta. Það ælti þó að vera full-ljóst. Lengra framundan er önnur spurning: „Ur því að vínnautn er skaðleg iþróttamönnum, þá hlýtur hún lika að vera hættuleg fyrir litla, aflvana þjóð, í stóru, erfiðu landi, þar sem þjóð- lífið er enn í bernsku, og þörf viðreisnar á ótal sviðum?“ Hvað finst „vormönnunum11 um það?

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.