Skinfaxi - 01.10.1917, Blaðsíða 3
SKINFAXI
75
Kveðja vestur
umfhai.
Stephan 6.
Stephansson
Stephan G. Stephansson lagði af stað
héðan frá Reykjavík með „Gullfossi“ 24.
þ. m. áleiðis til Vesturheims.
Hann kvaddi föðurland sitt og hélt
heim til fósturlandsins.
Hlýjar og innilegar árnaðaróskir frá
okkur ungmennafélögum fylgja honum
vestur yfir hafið. Hann er skáld okkar,
skáld æskunnar.
„Láttu hug þinn aldrei eldast, eða hjart-
að“. Þannig hefir hann kveðið, og þann-
ig hefir hann lifað sjálfur.
* *
*
Það var í fyrra haust i nóvember, sem
samfundur okkar ungmennafélaga var
haldinn hér í Reykjavík, fundurinn, ]>ar
sem fyrst var hafist handa í þessu máli.
Mér verður það kvöld lengi minnisstælt.
Eg hefi setið á mörgum ungmennafélags-
fundi, en aldrei vitað neinu máli tekið
þar með slíkri hrifningu, slíkum samhug.
Margir töluðu, hver og einn kom með
sína uppástungu til að koma málinu i
framkvæmd sem best og sem fyrst. Sam-
skotalistinn gekk um salinn og safnaðist
þegar um hálft fimta hundrað krónur.
011 trúðum við því, að innan skamms
auðnaðisl okkur að sjá Stephan hér heima,
heilan og hraustan og að hann fengi loks
að sjá æltjörð sína og æskustöðvar. Feg-
urstu kvæði Slephans voru rifjuð upp og
síðast var fundi slitið um nóttina með því
að nllir sungu langspilsljóð skáldsins hin
fögru:
„Hver er alt of uppgefinn
eina nótt að kveða og vaka?“
* *
*
„Það er holt að hafa átt
heiðra drauma vökunætur“
getum við ungmennafélagar nú sagt. Vöku-
draumarnir okkar á þeim fundi hafa nú
ræst, og það betur en flestir draumar eru
vanir að rætast. Stephan hefir komið,
ferðast um landið, allsstnðar verið tekið