Skinfaxi - 01.11.1917, Síða 5
SKINFAXI
83
IY. Eignir félagarina.
Ræktað land kr. 1245,00. Skóglendi
kr. 880,00. Óræklað land kr. 1365,00
Sundlaugar kr. 4639,50. Hús kr. 20371,50
Leikvellir kr. 667,80. Hlutir í Eimsk.fél.
íslands kr. 600,00. Girðingar kr. 1319,60
Bókasöfn kr. 6650,62. Aðrar eignir kr.
11383.00 Eignir alls kr. 49122,02.
Skuldir hvíla á félögunum samtals kr.
6632,75 kr. Skuldlausar eignir ættu því
að vera virtar á kr. 42489,27
Rœktað land eiga félögin eða hafa til
nmráða, um 13450 □ m. Óræktað land
526482 □ m. Skóglendi 21325 □ m.
Leikvellir 6, 14777 □ m. Sundlaugar eru
nefndar 13 og 16 fundarhús að meðtöldum
hlutum í húsum. Að samtöldu eiga fé-
lögin 3086 bindi af bókum.
Að eins nokkur hluti af löndum og lóð-
um félaganna er virtur til peninga, svo að
eignaframtalið verður að því Ieyti alt of
lágt. Svipað má segja um félagssjóði.
Sumir tekju og útgjaldaliðir eru ekki til-
færðir í skýrslunum.
Aths. Samkvæmt skýrslum 1914 voru
þá 49 félög í Sambandinu með 1923 fó-
lagsniönnum. Hér hafa verið talin 56 fé-
lög með 2346 félögum. En eftir að skrá-
in var samin, hafa 4 félög sent skýrslu
með félagatali 139 og frá 8 félögum
vantaði skýrslu, 3 þeirra 8, eru nýkomin
í sambandið og telja 134 fél.m. Hin 5 af
þessum 8 höfðu, 1915, 127 fél.m. Eru
þannig í sambandinu 68 félög með 2755
félagsmönnum. Frá því síðasta sambands-
þing var háð hafa þá bæst við í liópinn
19 fé’ög með 832 félagsmönnum.
Skýrsla um „aukastörf og sjálfboð-
vinnu“ verður birt síðar.
14. júní lí)17
Guðm. Davíðsson
Kynnisí arir.
í 2. og 3. tbl. Skinfaxa þ. á. birtist
grein með fyrirsögninni „Skemtifarir“, eftir
Bergþór Jónsson. Er þar vakið máls á
því, að ungmennafélagar ættu að gera
meira að þvi að heimsækjaHiverir aðra
en hingað til heíir tíðkast, og bent á ráð
til þess að anka ferðalög ungmennafélaga
um fjarlægar sveitir. Á fjórðungsþingi
Sunnlendinga var málið rætt, og samþykt
tillaga um að halda því vakandi. Á sam-
bandsþingi komst það ekki á dagskrá, sökum
annara þinganna. En ég mun hafa lofað
að skrifa nánar um málið og vil ég nú
reyna að lej^sa mig frá því loforði, þó
nokkuð langt sé um liðið og þó mig skorti
nú tíma og tækifæri til að gera það eins
rækilega og ég vildi.
Þegar ég kom heim úr útlegð minni
fyrir tæpum þremur árum og fór að gefa
mig við ungmennafélagsmálum, þá fanst
mér samband ungmennafélaganna ekki
eins öflugt og æskilegt væri, Fanst mér
meira gengið eftir því að sambandið væri
i röð og reglu á pappírnum, en að þess
væri gælt, að einingarbandið væri traust
og innilegt. Þegar ég svo fór að kynnast
ungmennafélögunum i ýmsum héruðum,
þá komst ég brátt að því, að víða eru til
menn og konur innan ungmennafélaganna,
sem vilja nota félagsheildina til að afla
sér vina í fjarlægum héruðum, er geti
orðið til að auðga Iífið í sveitafábreytninni
og víkka sjóndeildarhringinn fyrir þeim
sem heima sitja.
Sambandsþing og fjórðungsþing riá ekki
nema til svo fárra, að þau geta ekki full-
nægt kröfum heildarinnar u’m] innilegt
samband og bróðurþel, sem þó verður^að
vera kjarninn í félagskapnum, ef hann*á
að eiga tilkall til nokkurrar framtiðar í
landinu. Mér er kunnugt um það, að
fulltrúar hafi ílutt heim með sér af þing-
um meira og minna af þeim áhrifum, sem