Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1917, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.11.1917, Blaðsíða 6
84 SKINFAXI samtaka áhugi og sainúð geta veitt æsku- mönnum við skjóta viðkynningu. £n þeir eru of fáir, sem áhrifanna hafa notið á þennan hátt, og ekki hægt til þess að ætlast, að þeir geti miðlað öðrum af þess- um áhrifum, að minsta kosti ekki í þeirri mynd, sem þeir hafa sjálfir notið þeirra. Það er einkennilega fjörgandi og hressandi fyrir ungt fólk, að hitta menn, sem vissa er fyrir að hafi áhuga á ýmsu því, sem manni er sjálfum Ijúfast að hugsa um og ræða. Þegar menn vita, að innan skamms eiga þeir að skilja aftur, þá verður kynn- ingin miklu örari en ella, og það er eins og hver og einn keppist við að bera sem fyrst á borð það besta, sem hann á til, í hugsun eða í þekkingu, i lundarfari eða viðmóti yfirleitt. Og sá vinnur flesta og besta vinina, sem mest og best hefirfram að bera og er um leið næmastur til að veita viðtöku því, sem aðrir hafa á boð- stólum. Á þessum þingum, og við það að koma til ungmennafélaga úli um sveit- ir, hefi eg sannfærst um það til fulls, að samband ungmennafélaganna þarf að vera sem mest samband milli manns og manns persónulegt samband milli sem flesti . félagslima. Það er auðvitað ekki ætlun mín, að allir ungmennafélagar verði svona nánir vinir. Skaplyndi manna er svo misjafnt, og á- huginn á þeirri hugsjón, sem allir ung- mennafélagar eiga saman, getur varla verið syo mikill hjá öllum, að hann einn geti jafnað allar misfellur. En allir menn þurfa að eignast vini, og allir menn geta eignast vini. Auðvitað er þeirra helst að leita í hóp þeirra manna, sem á einhvern hátt hafa' fylkt sjer undir sama merki. Ungmennafélagar ættu ekki að geta vænt sjer betra samræmis annarsstaður en inn- an síns Áélagsskapar. Þessvegna verður að krefjast þess, að samband ungmenna- félaganna geti fjelagsmönnum sínum kost á afla sjer vina í sínum hóp, — gefi mönnum kost á að leita sem víðast og sem best eftir þeim mönnum, sem best fullnægi þeim kröfum, er hver og einn gerir til vinar síns. Um það leyti sem jeg fór að ’gefa mig af alvöru við ungmennafélagsmálum, komst eg í kynni við annan’ félagsskap, sem færði mér til fulls heim sanninn um það, hve sterkt afl þessiýpersónulega við- kynning getur verið f lífi mannsins, ' og ]>að einmitt ekki síst sú kynning, sem stofnuð er í skyndi, þegar menn koma saman til þess að kynnast. En ég fékk Iíka í þeim félagsskap bendingu um það, hvað ungmennafélögin hér á landi geti gert, til að gefa sem flestum kost á að kynnast, ekki einungis nágrönnum sínum, heldur einnig þeim, sem fjær búa. Orugg- asta ráðið er, að gera ungmennafélögum sem greiðast að heimsækja hver annan. Láta þá vera gesti hvern á annars heimili, boðna og velkomna til félagssystkina sinna, þótt þeir hafi aldrei séð þau áður. — Þetta er það, sem eg kalla kynnis- .ir. Bergþór hefir lýst því svo vel í fyr- nefndri grein, hvers virði ferðalögin eru fyrir þann sem ferðast. Með því sem hér hefir verið sagt, er bent til þess, hvers virði það getur verið, fyrir þann sem heima situr, að fá á heimili sitt samhuga gest, er hann verðnr að kynnast lljótt. Og flestir íslendingar þekkja hvað það er, að fagna góðum gesti. Eg tel því víst að kynnisfarir meðal ungmennafélaga ættu að geta orðið tíðar fyrir þær sakir, að nógir vilji fara í kynnisfarir og nógir verði til að taka á móti þeim. En það er þó ýmislegt sem athuga þarf, til þess uð kynnisfarir geti gengið greiðlega og orðið að fullum notum á báðar hliðar. Skal eg nú reyna að lienda á vanda- mestu atriðin og um leið gera grein fyrir hvernig ég hugsa mér að úr þeim verði ætt.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.