Skinfaxi - 01.11.1917, Side 8
86
SKINFAXI
Cleveland, sem einu sinni var fátækur
skrifari, fullyrðir að bestu þroskaskilyrði
mannsins séu framagirni og fátækt.
Hvað mundi meðalmaðurinn gera, ef
liann ekki þyrfti af fjárhagslegum ástæðum
að starfa eitthvað og leggja hart að sér til
að halda lífinu í sér og sínum. Ekki
þyrfti hann að standa í stríði ef hann hefði
alls nægtir. Ekki einn af hverju þúsundi
mundi leggja sig fram til þess eins að gang-
ast fyrir menningargiidinu. Flestir gang-
ast fyrir því að svala metnaðargirnd sinni
og að sjá sér og ástvinum sínum horgið.
Æskumaður sem hýst við arfi, hugsar
víst sem svo: „FIví er ég að rísa árla úr
rekkju, til þess að strita? Nóg á eg efn-
in og þarf því ekki að bera áhyggju fyr-
ir mat og drykk“. Og liann vellir sér á
hina hliðina og sofnar aftur, þegar hinn
sem sjálfur verður að leiða sjálfan sig
hlýtur „að vakna og vinna“. Hann skil-
ur að hann verður að sækja fram, því
að enginn hjálpar honum. Annað hvort
hlýtur hann að sökkva eða þá að vinna
af öllum mætti til þess að komast áfram.
Þannig þrýstir náttúran manninum með
þörfinni til þess að temja og efla atgerfi
sina og vinna að framþróun siðmenning-
arinnar í heiminum. Hún agar hann og
fágar árum saman í háskóla reynslunnar,
svo að hann geti að lokum orðið starfi
sínu vaxinn.
0. S. Marden
(Lauslega þýtt.)
Félagsmál.
Fræðafélaglð
hefir gefið Samhandinu kost á Ársriti
sínu, 1. og 2. árg., með lágu verði. Þeir
ungmennafélagar eða félög, er kynnu að
vilja gerast áskrifendur hjá Sambandinu
gefi sig fram.
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. 1.
Verð: 2 krémir.
Ritstjóri: Jónas Jónsson, Skólavörðustíg 3.
Sími 418.
Al'greiðslumaður: Egill duttormsson.
Skólavörðustíg 8.
EyðuMöð
undir skýrslur um störf sambandsfélag-
anna, efnahag o. fl. voru send með nóv-
emberpóstum til Vestfjarða, í Skaftafells-
sýslur og á Fljótsdalshérað. Fjórðungs-
stjórnir Norðlendinga og Sunnlendinga
höfðu tekið þau áður. Skyldu sendingarn-
ar ekki hafa komið lil skila, ættu félögin
tafarlaust að senda kvörtun.
Ekki voru send nenrn 2 eyðublöð til
hvers félags, af því að upplagið er á för-
um. Fjórðungsstjórn og Sambandsstjórn
eiga að fá sitt eint. hvor. Munið að senda
skýrslurnar (og skattinn) þegar eftir ára-
mótin.
Oestanefnd
Reykjavíkurfélaganna starfar eins og
áður. Þeir sem vildu hafa hana til að
stoðar um undirbúning kynnisfara, geta
skrifað til Steinþórs Guðmundssonar cand.
theol., Flensborg Hafnarfirði, eða Aðalstr.
16 Rvík.
Sigurðnr Vigfússon
frá Brúnum er kominn úr fyrirlestra-
ferð um Árnessýslu. Aðsókn var mikil
að fyrirlestrum hans, þrátt fyrir óvenju
stirða veðráttu. Honum tókst svo eftir,
að félagsskapurinn væri í góðu horfi þar
austan fjalls. Héðan fer hann upp í
Borgarfjörð og Mýrasýslu, í sömu erindum.
Má vænta góðs árangurs af starfi hans.
Ritstjóri: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Félagsprentsmidjan