Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1918, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.02.1918, Blaðsíða 4
12 SKINFAXI rétt framan viö tær fremri fótar. Mestur hluti líkamsþungans hvílir á aftari fætin- um og höndunum. í þessari stellingu bíö- ur hann rólegur næsta merkis ræsis, sem er: Eruö þiö til? Þá breytir hann stelling- unni; réttir úr fótunum til hálfs og stend- ur nú sem stööugast í báða fætur og hall- ast fram á hendurnar, svo mikið, að ef hann slepti jörðu með þeim, mundi hann falla áfram. Höfuðið veit beint fram þó án sveigju í hálsinum, bakið beint og lá- rétt. Athyglin er nú ö 11 dregin saman um þetta eina: viðbragðið, því á (eftir næsta hrópi ræsis : Búnir! ríður s k o t i ð af og kapphlaupið byrjar. Um leið og skot- ið heyrist, kastar hann sér áfram — ekki upp —, fyllir um leið lungun og notar nú hendur og fætur sem ákafast, til þess að ná sem fyrst fullri ferð. Á meðan verið er að auka ferðina (8—io fyrstu metrana) réttir hann sig smám saman upp, þar til hann er næstum beinn, með höfuðið dálítið beygt áfram. Þannig er hlaupið fyrstu 6q m., eða þar í kring. Þegar þangað er kom- ið, munu lungun vera sem næst tóm, og er þá tekin ný aðöndun, og á hún að vera nægileg á skeiðsenda (á vegal. ioo yards ioo m. eða 120 yards). Ef hlaupið er 200 m. eða lengra, þá andar maður að sér eða frá, þegar þörf gerist. — Þessi regla, að anda svona sjaldan á stuttum sprettum, er kend af þvi, að manni hættir við að hægja ósjálfrátt á sprettinum, þegar maður andar að sér; verður því að hafa sérstaka athygli á því, ])egar þetta er gert, aö herða sem mest á sér. — Um leið og maður dregur að sér andann í seinna skiftið, byrjar það sem kallað er ,,finis“ á erlendu íþrótta- máli, — sem kanske mætti kalla „herslu- sprett“ á íslensku. Það er að herða enn á sér, þó hlaupiö sé með fullri ferð; og er ]>að þyngsta þrautin. Það er gert ])annig: Líkamanum er lyft svo hátt á tá sem auðið ér.höfuðiðlátiðfalla dálitið áfram — þó ekki niður á bringu — og likaminn hafður allur meira álútur en áður. Höndunum er líka oft á síðustu metr- unum lyft upp fyrir höfuðið. Áhrifin á hlaupið verða sú, að jafnvægispunktur lík- amans verður alt af framan við fæturna, og njóta þeir sín því betur en ella. Þannig ig er hlaupið á enda skeiðsins. — Gæta ]>arf þess, að hægja ekki á sér, þegar kom- ið er að markinu, heldur halda fullri ferð, þar til komið er 4—5 metra aftur fyrir endastólpa. * Öll spretthlaup eru hlaupin svo hátt á tá, sem mögulegt er; helst á blá tánni. í ö 11 u m h 1 a u p u m og sömuleiðis g ö n g u, á að setja fæturna b e i n t hvorn fram fyrir annan, (þ. e. maður á aö hlaupa og ganga eins og eftir einni línu). Hlaupari, sem er fljótur af stað, en á ilt með að halda sprettinum þegar líður á hlaupið, verður að æfa sig talsvert mikið á lengri vegalengdum (400—1000 m.) með hálfri ferð. Auðvitað verður hann að æfa líka viðbrögð og stutta spretti. Hinn, sem er seinn af stað og fyrri helming hlaups- ins verður aftur að leggja mesta áherslu á viðbragðið og stuttu sprettina. Annars þurfa allir aö leggja mjög mikla áherslu á við bragðið og þaulæfa það. 1 útlendum íþróttabókum er mönnum ráðlagt að æfa viðbragðið eftir skoti, — sem líka er best, — en það niun fáir hér hafa ráð á „viö- bragðs-byssu“ til slíks. Má þá líka alveg eins nota eitthvert annað snögt hljóð, sem auðvelt er að fá með ])ví t. d., að slá ein- hverju saman. Þá skal viðhafa skipunar- orð ræsis, eins og á leikmóti, og hljóðið haft í stað skotsins. Viðbragðið er, eins og áður er sagt, það sem einna mesta þýðingu hefir fyrir sprett- hlaupamann, og varla liægt að gefa ])ví of mikinn gaum. Mörg þrautahlaup (fin- als) eru einmitt unnin með viðbragðinu, því oft eru þeir, sem mætast þar, mjög líkir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.