Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1918, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1918, Blaðsíða 6
14 SKiNFAXI Verk að vinna. Þekkingin er Mjölnir mannkynsins. Meö þvi kjörvopni einu, fá menn vegiö Mökk- urkálfa heimsku og hleypidóma, og variö jötnum berg hjarta sins. Og meb þvi rota menn einnig fjandsamlegu náttúruöflin, en drepa hin hagnýtu úr dróma, og hræSa þau til hlýðni, sem óstýrilát eru. Þetta vopn er því harla nauðsynlegt öllum, og ham- ingjunni sé lof, að það getur verið í flestra höndum samstundis. Skólar og bóklestur heimta mönnum hamar þennan, og kenna Jieim að beita honum. Skólarnir eiga að leggja grundvöll þekk- ingarinnar, og fremja svo vit manna, að þeir geti síðan haft full not bóka og blaða. Það munu þeir og gera, óðar en þjóðin viðurkennir lífsrétt þeirra í raun. Hitt vita allir, sem nokkurt skyn bera á skólamál, að barnaskólar geta aldrei veitt svo full- nægjandi þekkingu, að óþarft sé við aS bæta, — þótt nú sé þess ranglega krafist — Það geta unglingaskólar ekki heldur, og eg held engir skólar. Bækurnar taka viS af skólunum, og veita hverjum fróðleik þann, sem hann er fær viS aS taka. Er þvímikils um vert, aS alþýSa hafi nægan kost góSra bóka, enda skól- arnir ónýtir án þess. Þetta hefir alþingi líklega séS — eSa grilt, —• og þvi lagt fé nokkuS til bóka- útgáfu og styrktar bókasöfnum. Sumir bóksalarnir hafa gefiS út, — og gefa út, — rnargar ágætar bækui^ En þær eru dýrar aS vonum, því alþýSa kaupir fátt annaS en sorpritin, sem farandbóksal- ar færa henni. Á hún því fáar bækur góSar, enda komin á þaS lagiS aS lesa helst furSu- rit skáldfífla, og kaupa þaS sem ódýrast er, ef í bókabúö er komiS. Á þessu má ráSa bót meS því aö gefa út góSar bækur fyrir almenning, 5—10 króna viröi árlega, og hafa fasta kaup- endur. Væri vel aS samband ungmennafélaga tæki þessa útgáfu aS sér, og fengi styrk til hennar úr landssjóSi. Standa erigir aSrir jafn vel aS vígi, aS afla bókum sínum út- breiSslu, og þá ekki heldur aö hafa þær ódýrar. Mér þætti ráSlegt, ef þetta kæmist í framkvæmd, aS sambandsþing kysi 7 manna nefnd, til 3 ára í senn, til þess aS útvega bækur — frumsamdar á íslensku eSa þýddar — og sjá um búning þeirra undir prentun. Þessar nefndir yrSu auS- vitaS aS haga bókavalinu eftir stefnuskrá þeirri, er sambandsþingið setti, og ætti aS kjósa þær 2—3 árum áður en starfstími þeirra byrjaSi. Eg héldi hollast aö hefja framkvæmdir fyr en styrkbænir. * Þótt bækur séu til góSar, hefir alþýða hvorkivit aövelja þær, né féaö k.aupa.Hafa því bókasöfn veriö stofnuS, og lestrarfé- lög; en ríkust hafa þau flest veriö af rusl- inu, og skaSinn því smár, þótt lítt séu þau notuS. Sambandsstjórn ungmennafélága ætti aS fá bókfróöa menn til aS skrásetja góSar bækur íslenskar, þær sem nú eru falar, og þyrfti aS skifta þeim í 3—5 flokka, eftir verSleikum, auk sjálfsagSrar efnisskifting- ar. Síst mætti og lasta, þótt birtur yrði „svarti listi“, meS nöfnum bóka þeirra, sem betur væru ólesnar. Ekki er þaS þó tillaga mín. Þá vil eg aö öll ungmennafélög innan sambandsins stofni bókasöfn, og hagi bókavali eftir fyrgreindri skrá. Sambands- stjórnin hefSi eftirlit meö söfnum þessum, og birti viS og viö yfirlit hags þeirra og starfs. Væri ekki örvænt, aö alþing rétti hjálparhönd, til aukningar söfnunum, ef vel væri af staS fariS. * Þetta er beinlínis stefnuskrármál ung-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.