Skinfaxi - 01.04.1918, Page 1
S>&\wjaxi
4. BLAÐ
REYKJAVÍK, APRÍL 1918.
IX. ÁR.
Héraðssamband í Múlasýslum.
Á siðustu árum hafa orðið allmiklar
breytingar á skipulagi liinna smærri sam-
banda ungmennafélaganna víðs vegar um
Iandið. Vestur-Skaftfellingar hafa sagt
sig ur fjórðungssambandi Sunnlendinga
og stofnað sjálfstætt sýslusamband. Ann-
að sýslusamband hafa Austur-Skaftfelling-
ar sett hjá sér. I vetur komst á béraðs-
samband í Dalasýslu og sennilega verða
bráðum einhverjar breytingar á Ijórðungs-
sambandi Vestfirðinga. Borgfirðingar og
Mýramenn hafa um mörg ár átt samband
með sér, sem drjúgan skerí befir lagt
til viðhalds félagsskapnum í ]ieim héruð-
um.
Einhverjum kann nú að virðast svo,
sem þarna kenni mjög hveiflyndis og
breytingagirni ungra manna. En það er
naumast rétt. Slíkar breytingar hafa eflt
félagshreyfinguna enda eru þær mjög eðli-
legar og samkvæmar staðháltum öllum.
Hin stóru fjórðungasambönd hafa reynst
óhentug til frambúðar. Hvert félag þarf
árlega að senda fulltrúa á aðalfund í sínu
héraði. Þeir bera ]iar fram áhugamál fé-
lagsins og ráða ráðum sinum um tillögur
hinna. Þeir græða á að kvnnast dugmikl-
um samherjum úr öðrum bygðarlögum,
fræðast um störfin þar og gjalda í sömu
mynt. En slík samskifti hafa orðið mörg
um félögum ókleif vegna kostnaðar.
Félögin i Skaftafellssýslu gátu sjaldan
sent fulltrúa á fjórðungsþing Sunnlendinga
í Reykjavík. Húnvetningum er ófært að
sækja þing til Akureyrar. Fjórðungssam-
bandið, sem stofnað var í Austuramtinu
hefir lagst niður af líkum ástæðum. En
nú er það ein breytingin enn sem vafalaust
verður hreyfingunni til heilla, austanlands,
að þar er stofnað héraðssamband á sama-
grundvelli og þau önnur, er hér voru nefnd-
Teljast nú til þess 7 félög með 2(i8 fé-
lagsmönnum. Af þeim eru ]5 á Héraði
i í Vopnalirði og 1 í Norðfirði. Má telja
víst að íleiri félög eystra bætist smátt og
smált í hópinn. Samband þetta hefir nú
nýlega haldið aðalfund sinn og birtist ágrip
af störfum hans á öðrum stað í blaðinu.
Er þetta annar aðalfundur sambandsins
síðan það komst á fastan fót.
Óvíða á landinu mun vera jufngóð skil-
yrði frá náttúrunnar hálfu til þes- að sam-
eina mörg félög í eitt héraðssamhand eins
og í Múlasýslum. í miðju liggur Héraðið
og Jökuldalur með átta sveitum, Esilsstað-
ir, eða Eiðar í Héraðsmiðju sjálfkjörnir þing-
staðir. Eoþaðan eru L og2 dagleiðir úr fjörð-
unum, Vopnafiiði eða Borgarfirði og alt suð-
ur til Berufjarðar. Staðhætlirnir gefa það
í skyn, að þarna geti þrifisl öflugt sam-
band, ef æskumennirnir og leiðtogur þeirra
vita sitt hlutverk og kunna vel að fylkja
sér undir merki stefnunnar. Af sambund-
inu má þó enn ekki vænta mikils. Það hef-
jr lítið fé haft [með höndum og þar við
bæta-t svo diinir miklu erfiðleikar, sem
styrjöldin veldur. Stjórnin hefir því aðal-
lega nnnið að því að treysta snmbandið
milli félaganna og að safna nýpim i vjð-