Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1918, Side 8

Skinfaxi - 01.07.1918, Side 8
56 SKINFAX! TJtanáskrift blaðsins er: „Skinf axi“ Pósthólf 516 Reykjavík. andi veröur það bráölega, einkum ef stríö- ið er bráðum á enda. Áhugi manna á Héraði fyrir íþróttum viröist vera mjög mikill og almennur, þrátt fyrir það þó að íþróttamót þau, sem haldin hafa verið þar, hafi ef til vill fremur spilt honum en hitt. Flest ungmennafélög þar hafa einn eða fleiri starfandi íþróttaflokk ínnan vébanda sinna, einkum knattspyrnu- flokka og æfa þá aöallega á sunnudögum, sem sé að eins einu sinni í viku. Knatt- spyrnan getur varla veriö lieppilegasta íþróttin fyrir sveita-iþróttmenn, því ein æf- ing á viku er alls ekki nægileg til þess að ná nokkrum teljandi þroska í neinni iþrótt; til þess þarf næstum því daglega æfingu niánu'öum og árum saman. Þaö er því auö- ,sætt, aö með þannig háttaöri æfingu verður hún aldrei nein í þ r ó 11; í hæsta lagi aö hún geti heitiö 1 e i k u r. Og aöal-tilgangi íþróttanna nær hún alls ekki: a ö þ r o s k a i ð k q n d u r s í n a u m 1 e i ír o g h ú n þ r o s k a s t h j á þ e i m. Aft- ur á móti er úti-íþróttunum þannig háttaö. aö hver einstaklingur getur meö lítilli fyr- irhöfn æft þær heima hjá sér, og þess vegna daglega, og má þá með nokkurra minútna æfingu ná miklum þroska. (í öllum styvtii hlaupum, köstum og stökkúm fæst nægi- leg æfing á þá—/4 klst., ef æft er daglega; annars er betra aö þurfa ekki aö flýta sér mjög mikið.) —- Sund er auðvitað líka á- gæt einstaklings-íþrótt, þar sem hægt er aö koma því viö. — Þetta er ekki sagt liér til þess að hnekkja áhuga manna fyrir SKINFAXI. MánaSarrit U. M. F. í. Verð: 2 krónur. — Ojalddagi fyrir 1. jiílí. Ritstjóri: Jón Kjartansson, Skálholtsslíg 7. Póslliólt' 516. knattsp., heldur til athugunar fyrir hlut- aöeigendur. Ó. S. Til ungmennaíélaga íslands. Ungmennafélagiö Egill í Vopnafirði, ungmennafélag Meöallendinga, ungmenna- félagiö Vorboðinn í Langadal, ungmenna- félag Breiðdæla, ungmennafélagið Egill rauði í Norðfjarðarhreppi og ungmennafé- lagiö Svanur í Álftaveri hafa öll safnað lillögum til Verölaunasjóðs. vinnuhjúa. í viðurkenningarskyni fyrir þetta, hefir maður sá, sem upptökin á aö þvi, að stofn- aður verði verðíaunasjóður handa dugleg- um og dyggum vinnuhjúum í sveit, keypt hundrað eintök af Ársriti hins íslenska Fræðafélags og sendir hann þau hér meö hinum íslenskum ungmennafélögum aö gjöf, með þeirri ósk, og von að þau bein- ist fyrir þessú málefni og safni tillögum til Verðlaunasjóðsins hvert í sinni sveit. Maður þessi biður sambandsstjórn ung- mennafélaganna aö vitja þessara Ársrita hjá umboðsmanni Fræðafélagsins í Reykja- vík, herra bóksala Arinbirni Syeinbjarn- arsyni, og útbýta þeim á meðal ungmenna- félaganna. Fyrir hönd hins ónefnda gefanda. Bogi Th. Melsted. Félagspientsniiðjiin.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.