Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1919, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.1919, Blaðsíða 5
SKINFAXI 13 Fram við oss nú flýta megum, fram, því tíminn haslar völl. Landinu’ okkar, ljúfa, kæra, lítum enn þá granda fár. pað að klæða, þess að græða þúsund mörgu blóðgu sár, Eiða systkyn unnið höfum, ckki megum gleyma þeim. pessi vcrkin, það oss geldiir þúsundfalt, með gullnum seim. Yið getum svo margt, en við gerum svo fátt, cn gætum að vinir, oss skortir ei mátt, ef vildum nú allir mcð einum. ]?ví er það svo grátlegt að sjá okkar sveit á sundrungarskerinu rjúfa sin heit. pað getur ei guð liðið neinum. X. Smágreinar um tóbak. Eftir Jón Dúason. ósamræmi. Eilt af því, sem skólarnir eiga að inn- ræta börnum, er hreinlæti. En þrátt fyrir það, að uppeldisfræðingarnir reyna að berja þetta inn í meðvitund fólksins, stimpast menn i móti, og blóta óhreinlætið lcynt og ljst. Meðan kennarinn er að útlista her- virki tæringarinnar fyrir börnunum og hvernig hægt sé að verjast henni með hreinlæti, heldur tóbakstuggan „hringa- ball“ milli tannanna á honum, oft til mikillar ánægju fyrir áhcyrendurna. Hvernig er hægt að búast við árangri af hvatningarorðum kennarans um að útbreiða ekki tæringuna með hrákum, þegar hann undirstrikar þessi orð með að senda stóreflis tóbakshráka frá sér tíundu hverja sekúndu? Hvaða árangurs er hægt að vænta af uppörfun kennarans til barnanna, um að reykja ekki, þegar hann annaðhvort fyllir sjálfur skólastofuna með reyk, eða kvcikir í pípunni strax og hann er kom- inn út á tröppurnar. Foreldrar banna börnum sínum að neyta tóbaks, af því það sé alt annað en lieilsusamlegt, það sé óhreinlegt og reyk- urinn eitri loftið. En samtímis og fað- irinn útlistar allar þær hættur, sem af tóbakinu geli stafað, hin eyðileggjandi álirif þess á taugakerfið o. s. frv., biður hann Karl eða Ástu litlu að sækja píp- una sína og tóbaksbaukinn, hann sé orð- inn „þurfandi fyrir hressandi reyk“. Hvað gagnar það, að foreldrar og yfirboðaðar uppörvi, prédiki og banni, þegar þeir samtímis með dæmi sínu hvetja æskulýðinn til að fótumtroða bannið. Sólskin og hreint loft eru talin bestu bandamenn hcilbrigðinnar. En hvernig á sólin að geta skinið til blessunar, þeg- hún þarf að skína gegnum þykt tóbaks- ský. Og hvernig á loftið að verða til gagns fyrir heilsuna, þegar það cr þrungið af tóbakseitri! Fyrst og fremst verður að útrýma tóbakinu með öllu úr skólunum. pað ætti ekki að líðast þeim, sem kenna börnum, að nota tóbak við þú vinnu sína. Alment banna vinnuveitend- ur tóbaksnautn við vinnu. Hví skyldu skólanefndirnar ekki eins gcta heimt- að það sama af sinum starfsmönnum? ]?að er þvi meiri ástæða til þess, sem hér er í húfi lieilsa og' hreinleiki barna, sem eiga að verða starfandi menn í þjóðfélaginu eftir nokkur ár, — ísland framtíðarinnar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.