Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1919, Page 2

Skinfaxi - 01.08.1919, Page 2
58 SKINFAXI Söfnin láta oft prenta bréf, sem þau senda foreldrum þeirra barna, sem sækja til safnanna. ]?ar er starfseminni og tilganginum lýst og óskað eftir sam- vinnu foreldranna. — Bókaverðirnir gangast og stundum fyrir foreldra- fundum, þar sem fjallað er um barna- bækur og allar hliðar þessarar starf- semi. Um jólaleytið gefa söfnin vana- lega út skrá um hentugar bækur til jólagjafa. Á fæðingardag Washingtons Stundum eru prentuð og hengd upp til sýnis í barnadeildunum auglýsinga- spjöld með myndum og útdrætti úr ný- útgefnum bókum. Stundum lesa gæslu- stúlkurnar uppbátt fyrir börnin eða segja þeim sögur og æfintýri. Er víða ætluð til þess ein stund í viku, og leggja bókaverðir mikla alúð við frásögnina, enda þykir sá þáttur i bókasafnsstarf- inu mikilvægur og áhrifamikill. Geta þeir einir gert sér í hugarlund, hversu slíkt getur örvað lestrarlöngun og fróð- leiksfýsn barna yfirleitt, sem átt hafa góða „ömmu“, er vel befir kunnað frá sögum að segja. Með frásögnum sinum geta bókaverðirnir vakið löngun barn- anna til að lesa um lifnaðarhætti Indi- ána, hreysti og herkænsku Napóleons og Washingtons eða snild Demosþeness, Shakespeare’s og Snorra, sem þau befðu annars ef til vill farið á mis við. Stund- um stofna börnin, með aðstoð gæslu- stúlknanna, einskonar „lestrarfclög“, sem bafa það fyrir markmið, að lesa um og kynnast einhverjum sérstökum at- burði eða efni, á tilteknum tíma. Getur bver og einn séð, liversu slík fræðslu- starfsemi er rúmgóð og frjálslynd og hvernig hún stuðlar að sjálfmentun og sjálfstæðum þroska þcirra bæfileika og gáfna, sem hver og einn á ríkastar hvat- ir til. parna er engin ströng skipun um orðrétt utanbókarnám torskilinna „á- gripa“, ekki verið að troða í menn „kverum“, útblásnum af samanþjöpp- uðum og vafasömum kenningum. Aðgangur að söfnunum er bvarvetna ókeypis fyrir börnin. Notkunarreglur fáar, en þeim er stranglega fylgt. pau eiga að vanda framkomu sína, og tcmja sér prúðmensku i hvívetna. Nauðsyn- legum hx-einlætisreglum er stranglega fylgt og mikil stund lögð á, að temja börnunum góða meðferð á bókum og öðrum eignum safnsins. Getur nokkur hugsað sér yndislegri sjón, en að líta inn í eina slíka barna- lesstofu á vetrarkveldi, með öllu því, sem þar getur að lita: ljósagrúanum og eldi á arni, lifandi plöntum, myndum, bókum og starfandi börnum? Hvar sem litið er, við borðin, skápana, kringum bólcavörðinn, sitjandi flötum beinum á gólfinu — allstaðar sitja þau og standa rjóð og ánægjuleg yfir lestri æfintýra, sagna og ljóða, eða myndabókunum. Hvar mundu þau ala manninn þessa stund, ef borgarana hefði brostið manndóm, til þess að koma upp þess- um gróðrarslöðvum? * * * Hvernig er varið heimilisaganum á íslandi? Hafa breyskar hvatir barnanna þar yfirhöndina? Hvað gerir svo þjóð- félagið til að þess að taka að sér og hafa siðbætandi ábrif á þá unglinga, sem taumlaust stjórnleysið á heimilun- um sleppir út á götuna? Gatan er leik- völlur flestra barna í Reykjavík, þar sem þau eru limlest mörg á missei'i, og Alþýðulestrarlél. er styrkt árl. úr bæj- arsjóði með e i n u m c y r i á m a n n.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.