Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1919, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.11.1919, Blaðsíða 7
SKINFAXI 87 á, ef maður gerði sama verkið allan daginn. Nútíma vinna heimtar oft sérstaka orkutegund, aðeins afl sérstaks vöðva eða líffæris, eða skilningarvits. Mjög fá verk eða iðnir æfa alla vöðva líkam- ans í sameiningu. Nútíma iðnaðarmenn vinna aðeins með vissum part líkamans sem þreytist auðvitað, aftur á móti þurfa aðrir partar sem elcki eru notaðir æfingu og áreynslu. Sama gildir með andlega áreynslu, sá maður, sem er önnum kafinn að leggja saman reikningsdálka, er hvíld í því áð vera truflaður, þó einkum ef hann tekur því vel, og' hann álítur að sér sé ekki gjört ónæði, þá hvilist sá hluti heilans, sem vinnur að samlagn- ingunni. það er mjög algengt á meðal náms- fólks, að það ofreynir augun. Lestur æfir augað aðeins til að sjá það, sem sem er mjög nærri. Að ganga út og horfa út í geiminn er því hvild og heil- næmi fyrir fólk, sem vinnur að lestri og skriftum. Höfuðvciki, magaveiki og ó- róleiki sálarinnar, stafa oft frá ofmikilli augna áreynslu. Fólk skyldi varast alt, sem spillir sjóninni, ef eitthvað er að augunum, ætti að leita ráða sérfæðings, og fá lijá honum gleraugu' ef með þai’f. Yond birta er skaðleg fyrir augun, best er góð dagsbirta, og þar næst raf- ljós. Að stara mjög lengi á hreyfimynd- ir er mjög óholt. Að lesa í hálfrökkri, eða mjög sterkri sólskinsbirtu ættu all- ir líka að varast. Fyrir fólk, sem hefir miklar kyrset- ur, er gott að æfa eina klst. á dag, eða að minsta kosli 15 mínútur. Miillers- æfingarnar æru ágætar til þessa. Sveiflur og útréttingar eru hollar æfingar, þegar maður vaknar á morgn- ana, þó einkum ef andardráttaræfingar eru hafðar samfara. Ágætar eru allar þær æfingar, sem hvetja hjarta og lungu til starfsemis, svo sem hlaup, hröð ganga, fjallgöng- ur og sund. Allar þessar æfingar skulu samt vera í fullu samræmi við aldur, fjör og líkamsstyrklcika þess, sem iðk- ar, annars koma þær ekki að tilætluð- um notum. ]?að er mjög holt að iðka hægar vöðvaæfingar, eftir máltiðir stuðla þær að góðri meltingu. Tíma varið til þeirra: 15—30 mínútur. En allir skyldu þá forðast crfiðar æfingar, vegna þess að mildð af blóði manns- ins er þá í notkun af meltingarvegun- um. Utan úr lieimi. Járnhællinn. Fyrir skömmu, þá er „alþjóðahanda- lagið“ var rætt á allsherjarþingi Banda- ríkjanna, lýsti C. F. Curry þingmaður Kaliforniu járnhæl stórveldanna á hálsi hinna veiku og smærri þjóða á þessa leið: Japan á að fá í sinn hluta Kiaocliau og Shantungskagann; þann hluta Kína- veldis, þar sem spekingarnir Konfúsíus og Mencíus voru fæddir, störfuðu, dóu og eru grafnir. þessi glæpur er framinn af hinu svonefnda „friðarþingi“ í Vcr- sölum, að eins vegna þess að Japan er hervcldi, cn Kína er veik og hjálparlaus þjóð. Fyrir nokkru lét stjórnin í Kína brenna 25 milj. dollara virði af ópíum og bannaði algerlega notkun þess í lýð- veldinu. Japan og hin stórveldin lofuðu einnig hátíðlega að banna sínum borg-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.