Skinfaxi - 01.11.1919, Side 8
88
SKINFAXl
urum og þegnuni, að taka þátt í ópíum-
verslun við Kína. Japan heldur sitt lof-
orð að því er ópíum viðvíkur, en flytur
aftur feiknin öll af morfíni til Kína
um Shantungskagann. petta eitur nota
nú Kínverjar í staðinn fyrir ópíum, og
eru þcir mjög sólgnir i það. Og hefir
morfínið miklu skaðlegri áhrif á heils-
una en ópiumreykingar.
Veslings Kóreu er aftur og aftur neit-
að frelsiskröfum sínum af Japan. í ó-
friðnum á milli Rússa og Japana voru
Kóreumenn neyddir til að skrifa undir
samning, sem leyfði Japönum að setja
á land her og hergögn i Kóreu og flytja
þau um landið; samningur þessi átti
að eins að gilda um ófriðinn; á fyrsta
friðarári áttu þeir að flytja alt sem við
kom liernum úr Kóreu, en í staðinn fyr-
ir að efna samninginn, tvistruðu þeir
her Kóreu og tóku af honum vopnin,
og settu upp japanska stjórn í landinu.
Japan gerði þarna frjálst land að
japönsku héraði, og breyttu nafni þess
og kölluðu Chosen í staðinn fyrir
Korea, sem það hafði borið svo öldum
skifti.
Nú um ófriðinn síðasta, og við enda-
lok hans, þá er margir þjóðmálaskúm-
ar fimbulfömbuðu sem mest um lýð-
frelsi og sjálfsákvörðunarrétt hverrar
þjóðar, hugðu Kóreumenn að dagur
frelsisins og réttlætisins væri að koma,
unnu þeir þá kappsamlega og á frið-
saman hátt að endurreisn þjóðar sinnar.
En yfirþjóð þeirra, Japan, hefir svarað
þeim með manndrápum og fádæma
hryðjuverkum, og framið meira nið-
ingsverk á þeim en pjóðverjar á
Belgíumönnum, því að Belgir höfðu
her og gátu borið hönd fyrir höfuð sér,
en Kórea hafði engan.
Snemma í sumar átti það sér stað í
Kóreu meðal annars, að fjöldi fólks,
bæði konur, karlar og börn, var skotið
S KINFAII.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verð: 2 krónur. — (íjalddaal fvrlr 1. jiílí
Ritstj.: Ólafur Kjartanssou, Skólavörðustíg 25.
Pósthólf 516.
barið og troðið niður af japönskum
hermönnum og lögregluliði, fyrir það
að hafa borið merkisspjöld i skrúð-
göngu er þetta var letrað á: „Kórea vill
fá frelsi sitt.“ Fjölda af þessu fólki var
komið fyrir á amerísku sjúkrahúsi í
Seoul. En hvað gjörðu Japanar þá, þeir
réðust á sjúkrahúsið, lineptu læknana
og hjúkrunarkonurnar í fangelsi og
ráku hið særða fólk á flótta.
Fréttir.
Ó, Guð vors lands!
þ’ýðing sú af þessum alkunna lof-
söng þjóðskáldsins góða, Matthíasar
Jochumssonar, er vér höfum nú birt
í blaði voru, er eftir hr. Runólf Fjeld-
steð, sem er við háskólann í Chicago
og les þar undir doktorspróf í forn-
málunum, latínu og grísku.
Hr. Fjeldsteð er mesti efnis maður
og lærdómsmaður mikill, hefir hann
nú heiðursstyrk við fornmáladeildina
við háskólann í Chicago. pótt hann
hafi verið vestra frá þvi hann var bam
að aldri, þá er hann enn mjög íslenskur
í anda, og talar og ritar ágæta islensku.
Hann liefir þýtt mörg íslensk ljóð á
ensku. Nýlega birtist eftir hann í Sam-
einingunni ágæt þýðing af útfarar-
sálminum „Alt eins og blómsti’ið eina“.
F élagsprentsmiö j an.