Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1920, Page 7

Skinfaxi - 01.01.1920, Page 7
S KINFAXI 7 mín, að þaS væri ekki lítill menningar- þáttur til uppbyggingar íslensku þjóðlífij ef alls konar verkleg starfsemi tæki hér umbótum og næði almennri rótfestn. Smá- stundir þær, sein víðast mætti betur nota, mundu þá mikið færa í aðra hönd: ala upp fjölhæfara og sjálffærara fólk með miklu meira fegurðar og nytsemdarviti, og sem um lei'S bæri nokkurt skyn á grundvöll al- mennrar, verklegrar þekkingar, og yrSi aS sama skapi auSugra aS liugsun og hug- myndum. Þannig gæfi þetta, ekki einungis fjárhagslegan ág'óSa, heldur og sem mest væri um vert, miklu meiri umbætta menn- ingu. Félagsmenn og félagsmál. U. M. F. í Árnessýslu. t Árnessýslu eru þetta ár ellefu ung- mennafélög, og eru tvö þeirra nýgengin í sambandiS: U. M. F. Eyrarbakka og U. M. F. Sandvíkurhrepps. U. M. F. E. var stofnaS 5. maí i vor, fyrir forgöngu ASalsteins Sigmundssonar skólastjóra, og nokkurra unglinga. Voru stofnendur 43, konur og karlar. Var á- kveðiS á stofufundi að félagiS kæmi á námsskeiSi í sundi og öSrum íþróttum, á Eyrarbakka nú í vor (sjá fjórSungsþing- g‘erö). Knattspyrnuflokkur er tekinn til starfa innan félag’sins. I félaginu er 5 manna löggæslu- og dómnefnd, og er þar tekiu upp sú nýljreytni, aS formaSur hennar hef- ir „fult lögregluvald innan félags“. — í félaginu eru, sem stendur engir yngri en 14 ára, en á komandi hausti hygst formaS- ur (ASalst. Sigm.) að stofna yngri deild fyrir skólabörn, og ætlast til aS hún starfi meS svipuSu sniSi og skátafélög. VerSur hlutverk hennar, meSal annars, aS halda félaginu ungu — sjá því árlega fyrir nýj- um kröftum og ólgandi æskufjöri. Svo er fyrir hugaS, aS starfaS verSi 5 flokkum aS þeim málum, er félagiS sem. heild nær illa til, þannig, aS hver félags- maSur fái tækifæri til aS vinna í þarfir eigin áhug'amála, meS þeim, er eiga sönm hugSarefni. Þannig myndast t. d. aS sjálf- sögSu: glímuflokkur, fimleikaflokkur,. skákflokkur, söngflokkur, hannyrSaflokk- ur, teikniflokkur o. fl„ o. fl. Stjórn félagsins skipa: ASalsteinn Sig- mundsson, Ragnar Jónssön í Mundakoti og Nikulás FriSriksson, rafleiSslulegjgjari. Lögreglustjóri er Gísli Pétursson, héraSs- læknir. U. M. F. S. er miklu eldra félag, ])ótt nýgengiS sé í sambandiS. ÞaS á sér all- gott samkomuhús í Haga, svo og túnblett og gróSrarreit. FormaSur er Ásnmndur Ei- ríksson í Þórðarkoti, áhugamaSur og góS- ur ungmennafélagi, en um meS-stjórnend- ur er mér ókunnugt. Öll eru félögin í sýslunni sæmilega starf- andi, aS því er eg best veit, þótt ekki vinni þau sérleg afreksverk. Er starf flestra þeirra einkum fólkiS í því, aS gefa félög- um kost á aS koma saman til umræSu um lands og sveitar gag'n og nauSsynjar, í- þróttaiSkana, söngs og leikja. Sum þeirra leika sjónleiki, og eitt félagiS, U. M. F. SamhygS í Gaulverjabæjarhreppi, hefir leiksviS í húsi, er þaS á hjá Brandshúsum, og á þar mjög snotur leiktjöld, er Eyjólfur Jónsson, listmálari, hefir málaS. — Mörg- haldá félögin íþróttasamkomur á sumrin. Má nefna sem dæmi samkomur U. M. F. Hrunamanna á ÁlftaskeiSi. íþr óttanámsskeið. U. M. F. li. hefst á Eyrarbakka sunnu- dag 20. júní n. k„ aS forfallalausu. Um- sóknir frá U. M. F. úr Árnéssýslu sendist stjórn félagsins s e m f y r s t.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.