Skinfaxi - 01.01.1920, Blaðsíða 8
8
SKJNFAXI
SKIN-FA XI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verð: 2 krónur. — <>jalddagi l'jrir 1. julí
Ritstj.: Olafur Kjartansson, Skólavörðustig 35.
Pósthólf 516.
íþróttanámskeið.
FjórðungSþingj SunnlendingufjórSungs,
:sem haldiö var 13. og 14. maí þ. á., ákvað
að veita U. M. S. BorgarfjarSar 250 kr.
styrk til íþróttakenslu. — U. M. F. íslend-
ing'ur og Stafholtstungna, hafa tekiS a'5
sér aö sjá um kensluna, veröa þá haldin
tvö iþróttanámsskeiö í Borgarfiröi i vor,
og verSur styrkuum skift á rnilli þessara
tveg'gja félaga.
Ætlast er til, a5 hvert námsskeiö standl
yfir i hálfan mánuö, og er öllum heimilt
aö njóta þar kenslu, sem eru innan vé-
banda U. M. F. I. Þetta má teljast góð
nýbreytni hjá Borgfiröingum, því langt er
síðan héraðssambandiö hefir gengist fyrii
iþróttakenslu.
Til kaupenda. Skinfaxa.
Við ungmennafélagar erum dreyfðir frá
fjöru til fjalls á þessu stóra landi torfæra
og auðna. — Skinfaxi er boðberi hugsana
okkar og framkvæmda, án hans höfum við
ekkert er tengir okkur saman. Okkur ætti
því öllum að vera umhugað um aö hlúa
að honum sem best, svo að hann geti kom-
ið út regjulega og lifað góðu lífi. Það gæti
haft ill eftirköst og glögt dauðamark U.
M. F., ef Skinfaxi lognaðist út af.
Kæru ungmennafélagar og vinir, látum
ekki slíkt dáðleysismark verða að veru-
leika, heldur -störfum með nýju fjöri og
kröftum, og stuðlum að þvi aö koma mál-
gagni voru á traustari grundvöll en nokkru
sinni fyrr.
Alt, sem gert er, heimtar fyrirhöfn, —
eigi blað okkar aö geta starfað reglulega
og á heilbrigðan hátt, þurfum við öll að
leggjast á eitt, og hlynna að blaðinu með
því, að standa í skilum við það og helst
líka að útvega því nýja kaupendur. Mér
finst lika að þaö megi varla minna vera en
áður, en til þess þarf að hækka verðið á
blaðinu a. m. k. um helming. Þið vitið það
aö hvert smákver á markaðinum kostar
varla minna en 5 kr. En hvað viljið ]iiö,
ungmennafélagar, leggja á ykkur til að
hafa blað ykkar sæmilega úr garöi gert?
— Það getið þið rætt um á ykkar félag's-
fundum, og láta síðan fulltrúa ykkar hafa
ákveðna stefnu í því, hvað skal gera, þá
er næsta sambandsþing veröur haldið.
Guðmundur kennari frá Mosdal.
Hann fór í haust til Danmerkur og dvel-
ur þar enn, og kynnir sér þar iönaðarment-
un, sérstaklega alt er lýtur að heimilisiðn-
aði.
Guðmundur er áhugasamur ungmenna-
félagi, og hefir starfað mjög mikið í þágu
beirra. Vonandi eflir hann iðnaðarmentun.
þar sem hann sest að, þá er hann kernur
aftur, enda er ]iess full þörf, því að skólar
vorir leggja mjög litla eða alls enga áherslu
á ]iær námsgreinar, sem hafa verulegt nota-
gildi fyrir lífið. Afleiðingin er sú, að börn
og unglingar, sem á þá ganga, fá óbeit
á starfi fortíðárkynslóðarinnar og eru ])vi
skólarnir oft til niðurdreps , fyrir það um-
hverfi sem þeir starfa, i staðinn fyrir að
þeir ættu að þeir ættu að vera því til efna-
legra og andlegrar blessunar.
Félögin í Rangárvallasýslu
eru alvarlega ámint um, að gera hið
fyrsta aðvart um það til fjórðungsstjórn-
ar, á hvern hátt þau ætli sér að nota styrk-
inn til íþrótta (100 kr.), sem þeim er sér-
staklega ætlaður.
Fjórðungsstjórnin.
Félagsprentsmiðj an.