Skinfaxi - 01.04.1922, Side 5
SKINFAXI
29
»kóngajafnar«. Rykkjum út örfum rang-
sleitninnar og tildursins og segjum með
Þormóði Kolbrúnarskáldi: »Heitt er oss
um hjartarætur, vel hefir konungur alið
oss«. Ekki neinn jarðneskur konungur á
gómsætu kjarnmeti, heldur konungur kon-
unganna á andans ágæti því, sem engin
þjóð má án vera, sem ætlar sér að »þrosk-
ast á guðsríkisbraut«.
Bj'órn Guðmundsson.
Handavinnunámsskeið
U. M. F. Eyrarbakka.
Heimilisiðnaður er þjóðarnauðsyn, og
gæti verið afardrjúg lyftistöng þjóð vorri
— nokkuð fjárhagslega, svo sem nú er
mjög þörf á, og þó einkum sem uppeldis-
meðal og þroskatæki. En eitt hið albezta
ráð til eflingar heimilisiönaði er að vekja
og fræða fólkið með námsskeiðum, svip-
uðum þeim, sem U. M. F. Eyrarbakka
hefir haldið.
Vorið 1921 réðst U. M. F. E. í að
koma á námsskeiði fyrir félaga sína, í
þessum iðnaðargreinum: Hrosshárs-, bast-
og tágavinnu, burstagerð, mottugerð o. fl.
Fékk félagið lánaða kenslustofu í barna-
skólahúsinu, til þess að hafa námsskeiðið
í. Hófst það þegar að skóla loknum (3.
maí) og stóð fullar þrjár vikur, 4 stunda
kensla á dag. Var félagið einkar heppið í
kennaraútvegun, er það fékk frú Herdísi
Jakobsdóttur frá Húsavík. Nemendur á
námsskeiði þessu voru 15, á aldrinum
9—15 ára. Vakti það þegar töluverða
eftirtekt í þorpinu.
Nokkrir hlutir frá námsskeiði þessu voru
sendir á landssýninguna í Reykjavík s. 1.
sumar. Vöktu þeir þar svo mikla eftirtekt
og fengu svo mikið lof, að stjórn U. M.
F. E. afréð þegar að halda lengra í þessa
átt. Var frú Herdis þá þegar ráðin til
kenslu á næsta vetri, þeim, sem nú er
brátt á enda. Hófst 2. námsskeiðið 1.
nóvember s. 1. og stóð jafnlengi og hið
fyrsta, með sama stundafjölda. Að því
loknu hófst 3. námsskeiðið og stóð enn
þrjár vikur, en að eins tvær stundir á dag.
4. og síðasta námsskeiðið stóð fjórar vikur,
beggja vegna mánaðamóta janúar og fe-
brúar, tvær stundir á dag.
Aðsókn að námsskeiðum þessum hefir
verið svo mikil, að ekki hefði orðið fleira
komið fyrir, enda höfðu seinni námsskeiðin
þrjú þröngt húsrúm. Samtals hafa nem-
endur verið 55 á öllum náinsskeiðunum,
karlar og konur; 17 þeirra innan ferm-
ingar.
Alls hafa verið fullgerðir 317 hlutir,
smáir og stórir. Kennir þar ýmsra grasa,
og er ógerningur að telja hér frarn allar
þær tegundir. Sem dæmi má nefna: Sauma-
körfur (jo) á fótum — hvorttveggja í
senn: stofustáz og búkonuþing — blóma-
stæði af ýmsum gerðum, borðkörfur og
tínur, margar tegundir, hnífaparakörfur,
bréfakarfa, blaðaslíðrar, veggkörfur; ritfell,
bastpokar, ýmiskonar burstar og sópar,
o. m. fl. Einkum vil eg þó nefna tvær
tegundir iðnaðar, er mjög ruddu sér til
rúms og mikið er farið að nota hér, en
voru áður óþektar. Annað er einkar góðar
gólfmottur, sem gerðar eru úr úrgangs-
köðlurn, er mikið fellst til af á verstöðv-
um. Hitt eru skór úr hrosshári, og hafa
þeir sérstaklega verið lofaðirw Skó þessa
hefir, eftir því sem mér er kunnugt, frú
Herdís búið til fyrst manna. Eru þeir
hreinasta afbragð til inninotkunar, hlýir,
snotrir, níðsterkir og tiltölulega ódýrir.
Ætti sú skógerð að útbreiðast sem mest,
því að hún er bæði hagkvæm og þjóðleg.
Almenningi var gerður kostur á að sjá
muni tveggja fyrstu námsskeiöanna, og
voru sýningar þær vel sóttar. Komu á
hina seinni 104 fullorðnir og- urmull barna.