Skinfaxi - 01.06.1922, Side 4
44
SKINFAXI
S kinfaxi
Utgefandi: Samb. Ungmennafél. lslands
12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Skin-
faxi Reykjavík Pósthólf 516.
enda var hún öll úr járni, en árlega lask-
ast hún 'samt vegna mikilla snjó-
þyngsla á vetrum. Við hana hefir að
vísu verið gert, en hún þarf umbætur
árlega, ef vel á að fara. Ungmennafélög-
unum ber skylda til að annast hana,
því að undir henni er verndun skógarins
komin. Félögin mega aldrei láta það
undir höfuð leggjast að yrkja og verja
þrastaskóg. Ef ekki er annars kost-
ur, verða félögin að leggja einhver
önnur störf til hliðar, meðan þau eru að
koma tilhögun á ræktun skógarins í við-
unanlegt horf.
þrastaskógur er rúmar 140 dagsláttur
að stærð. Hann liggur í miðri bygð, við
Sogið og Álftavatn, í Grímsnesinu.
Sogsbrúin er við suðurenda skógarins,
um hana liggur fjölfarin akbraut frá
Reykjavík og báðum verslunarstöðun-
um í Árnessýslu, austur að Geysir.
Skógurinn er þarna á takmörkum
þriggja þéttbýlla sveita, og er því skamt
frá bæjum. Lega hans er sú ákjósanleg-
asta, er óvíst að nokkur skógur á land-
inu liggi betur við samgöngum og rækt-
un en hann. Jarðvegurinn í skóginum er
ágætur, og skjól er þar fyrir öllum
áttum.
.Yrði járnbraut lögð frá Reykjavík
austur um þvera Árnessýslu, lægi hún
tiltölulega skamt frá þrastaskógi, hvort
sem hún yrði lögð ofarlega eða neðar-
lega um sýsluna.
Allsherjar samkomustaður ung-
mennafélaganna ætti að vera sjálfkjör-
inn í þrastaskógi. þar ætti að vera
nokkurskonar höfuðstaður félagsskap-
arins. Sambandsþingið ætti að heyja
þar og héraðsþing ungmennafélaganna
í Árnessýslu, ennfremur samfundi og
skemtifundi þeirra félaga, sem þangað
nætu náð, o. s. frv. þessu verður ekki
komið til leiðar með öðru móti en því,
að ungmennafélögin reisi hús í þrasta-
skógi. það er brýn nauðsyn, ekki einung-
is vegna skógarins, heldur og líka félag-
anna sjálfra. í sambandi við fundahöld
félaganna í þrastaskógi skyldu haldnir
þar fyrirlestrar, og námsskeið í íþrótt-
um, skógrækt, matjurtarækt o. fl. 1 eða
2 vikur að vorinu, fyrir þá félagsmenn,
sem hefðu kringumstæður til að dvelja
þar svo lengi.
Mann yrði að ráða til að annast um
skóginn vor og sumar, ætti hann og
jafnframt að geta haft þar greiðasölu
á hendi, meðan umferð er sem mest
um veginn.
þegar þess er gætt, að mörg ung-
mennafélög út um land hafa komið upp
handa sér fundahúsum, má ætla, að
þeim yrði létt verk að reisa eitt hús í
þrastaskógi, ef öll félögin á landinu
legðu saman og beittu sér fyrir því. Til
þess að afla fjár til húsgerðarinnar hefi
eg hugsað mér að félögin efndu til sam-
skota, bæði innan og utan félags, og
gengjust fyrir opinberum skemtunum,
er þau kynnu að geta haldið í þessu
skyni. Sambandssjóður ætti og að geta
styrkt þetta fyrirtæki. þá væri og æski-
legt, að ungmennafélögin í Árnessýslu,
sem næst búa þrastaskógi gætu, að ein-
hverju leyti int af hendi sjálfboðavinnu
við byggingu hússins o. s. frv.
Hér skal svo ekki rætt um það frekar,
hve mikil nauðsyn það er fyrir framtíð
þrastaskógar, að ungmennafélögin eigi
þar hús. það er augljóst, að félagsskap-
urinn á miklu hægari aðstöðu að sjá
skóginum borgið í framtíðinni, en ella,
ef húsinu yrði komið upp.