Skinfaxi - 01.06.1922, Qupperneq 5
SKINFAXI
45
þegar skógurinn fær vöxt og viðgang
í skj óli friðhelginnar, ber hann með tím-
anum þroskað fræ, sem sáir sér. út og
festir rætur í skógarrjóðrunum. þenna
nýgræðing gætu svo ungmennafélögin
fengið eftir þörfum til gróðursetningar
heima hjá sér.
Hvort sem húsinu verður komið upp
eða ekki í þrastaskógi, verða ungmenna-
l'élögin áreiðanlega metin eftir því, hve
mikla alúð og' rækt þau sýna skóginum
— þessum minnisvarða, sem einn hinn
merkasti maður þjóðarinnar reisti sér
hjá félagsskapnum, og trúði honum fyr-
ir að varðveita á komandi tímum.
G. D.
----o---
10. ársfundur
Bandalags U. M. F. Vestfjarða
var í þetta sinn háður að Núpi í Dýra-
firði 7. og 8. apríl síðastl. Frá 11 félög-
um, er nú starfa í Bandalaginu, voru
mættir 16 fulltrúar.
Héraðsþingi U. M. F. Norðurlands, er
stóð þá sömu daga, var sent kveðju-
skeyti, og sendi það Bandalagsl'undinum
samskonar skeyti aftur. Fara hér á eft-
ir helztu tillögur er fundurinn sam-
þykti.
I. Samþykt að skora á félögin að beit-
ast fyrir aukinni þekkingu og skilningi
á gildi ungmennaskólans á Núpi fyrir
menningu héraðsins.
II. Skorað á Bandalagsstjórn og Sam-
bandsstjórn U. M. F. íslands að útvega
hæfa fyrirlestramenn til að starfa á
Bandalagssvæðinu næsta vetur.
III. Bandalagsfundurinn tjáði sig
fylgjandi auknum innlendum iðnaði og
skoraði á félögin:
a. að afla styrks væntanlegu tóvinnu-
fyrirtæki á Vestfjörðum.
b. að styðja að því, að heimilisiðnað-
arsýningar verði haldnar í sem
flestum félögum innan Bandalags-
ins, sem Bandalagið veiti styrk til.
IV. Samþykt að beita sér gegn allri
erlendri tízku, sem skaðleg væri ís-
lenzkri menningu og staðháttum. (Sjá
grein á öðrum stað í blaðinu).
V. Samþykt að Bandalagið stofni til
húsmæðranámsskeiðs á komandi hausti.
Námsskeiðið verði haldið að Núpi,
styrkt af Bandalagssjóði og sótt um
styrk til Búnaðai'sambands Vestfjarða
og sýslufélga á Bandalagssvæðinu.
VI. Urn bannmálið var þessi tillaga
samþykt með öllum atkvæðum sam-
hljóða:
„þar eð nú liggur fyrir löggj afai'þingi
þjóðarinnar frumvarp um xýmkun eða
afnám bannlaganna, og líkur eru til, að
á þessu ái’i verði málið lagt fyrir þjóð-
ina til úi'skui'ðar með atkvæðagreiðslu,
skorar Bandalagsfundur á ungmennafé-
lögin að vernda heill og heiður þjóðai'-
innan með stuðningi við bannstefnuna".
Alþingi var og sent símskeyti um að
láta ekki að hótun Spánvex-ja.
VII. U. M. F. þróttur og Ái’vakur var
falið að undirbúa héraðsmót á Isafii’ði
í sumar, og að sjá um kappglímu næsta
vetur.
VIII. Samþykt að halda fjallamót 2.
eða 9. júlí í sumar, — ef heiðskírt veð-
ur fengist annan hvorn daginn, — á
Vatnafjalli í Önundarfirði.
IX. Samþykt fjái'hagsáætlun fi'á 1.
apríl 1922 til 1. s. m. 1923.
T e k j u r:
1. Tekjuafgangur frá f.á. kr. 837.60
2. Skattur félaganna . . — 403.70
3. Tekjur af Héi'aðsmóti — 100.00
Samtals kr. 1341.30
G j ö 1 d:
1. Skattur til Samb. U.
M. F. ísl...........kr. 140.00
2. Kostnaður við Banda-