Skinfaxi - 01.06.1922, Side 8
48
SKINFAXI
Forskotshlaup.
Fyrir skömmu var haldið hér(Iþrótta-
félag Rvíkur) f orskotshlaup. 0g var
þar fyrsta sinn, sem þess konar hlaup
er hlaupið hér á landi. Vegalengdin var
4 rastir eða álíka vegalengd eins og
víðavangshlaup í. R. þátttakendur voru
11, allir þátttakendur í víðavangshlaup-
inu á fyrsta sumardag, og var þeim gef-
ið forskotið eða forgjöfin, eftir því sem
þeir höfðu komið að markinu þá, þann-
ig, að sá sem fyrstur varð á víðavangs-
hlaupinu, af þeim, sem þarna hlupu,
fékk engan frádrátt frá vegalengdinni,
— hljóp fullar 4 rastir, en hinir fengu
allir frádrátt, og þess meiri, sem síðar
höfðu komið að marki í víðavangshlaup-
inu. Mestur frádráttur — eða forskot —
var 276 stikur. Forskotið er gefið til
þess, að allir hafi jöfn líkindi til sigurs,
til þess sem sé, að gefa þeim, sem
skemmra eru komnir og annars hafa
engin líkindi til sigurs, einstaka sinnum
tækifæri til að vinna sér verðlaun. Er
þetta því ágætt meðal til að hvetja hina
yngri. — En af því að forskotið var
reiknað út eftir víðavangshlaupinu, sem
fór fram mánuði fyr, kom það dálítið
ójafnt niður, vegna þess að sumir höfðu
hlaupið víðavangshlaupið lítt æfðir, en
voru nú komnir í æfingu. Annars er það
venjan, að skamta forskotið eftir bezta
tíma, sem einstaklingurinn hefir náð
það sumar, og fyrirgerir þátttakandi
verðlaunum sínum, gefi hann upp of
langan tíma vísvitandi. Fyrstur varð
þorkell Sigurðsson, Álafosshlaupari
(126 stika forgjöf), á 13 mín. 28,6 sek.,
næstur varð Ólafur Árnason (90 stika
forgjöf, á |13 mín. 32,6 sek., og þriðji
Ágúst Ólafsson. Sá sem hljóp alla vega-
lengdina varð 14 mín. 50 sek., og náði
engum keppenda sinna, og sýnir það hve
misupplagðir menn eru, því hann hljóp
Iróttaiim! Iimennatið!
Vegna tilfinnanlegs skorts A íþróttatækj-
um hér, liefi eg pantað dálítið af spjótum,
kringlum, þolhlaupa- og stökk-skóm; einnig
spjótsköttum. Verðið á spjótunum verðui'
frá 14—16 kr. (unglingaspjót 10—12 kr.), á
kringlunum frá 24—30 kr. (unglinga 12—15
kr.), og á skónum frá 23—26 kr. Varasköft-
in kosta 6—7 kr. — Sent út um alt land.
Áhöldin eru öll af beztu gerð (t. d. bezta
teg. spjótanna með nikkileruðum stáloddi
og póleruðu skafti) og frá beztu verksmiðju.
r
Olafur Sveinsson,
Vatnsstíg 3. Reykjavík.
víðavangshlaupið á 13. mín 53,8 sek.,
varð 3. þar. Ó. S.
----o----
íþróttir.
Glímufélagið Ármann stendur nú fyr-
ir hinu stærsta íþróttamóti fyrir alt
landið, sem nokkurn tíma hefir verið
haldið. Sækja það íþróttamenn úr öllum
landshlutum. Mótið hefst 17. júní og
stendur þangað til þann 25. Fleiri íþrótt-
ir verða sýndar en áður. Skinfaxi mun
flytja fregnir af mótinu við fyrsta tæki-
færi.
Iþróttafélag Reykjavíkur hefir ráðið
hingað norskan kennara í útiíþróttum.
Heldur það nú námskeið hér á íþrótta-
vellinum og hefir boðið þátttöku í því
íþróttamönnum hvarvetna af landinu.
Félagið hefir útvegað þeim ýms hlunn-
indi, svo sem ókeypis húsnæði í Reykja-
vík meðan á námsskeiðinu stendur, út-
vegað þeim afslátt á fargjaldi með skip-
um Eimskipafélagsins. Er sú starfsemi
félagsins því mjög til sóma.
Prentsmiðjan Acta.