Skinfaxi - 01.08.1922, Blaðsíða 2
58
SKINFAXI
íþróttan ámsskeið
Iþróttafélags Reykjavíkur.
I haust sem leið var tekið að ræða um
það í Iþróttafél. R.víkur að halda nám-
skeið í íþróttum í R.vík á komandi vori.
Lauk þeim umræðum þannig, að ákveðið
var að halda námsskeiðið og var kosin
nefnd manna til að annast allar framkvæmd-
ir. Skyldi leggja alt kapp á að piltar víðs-
vegar af landinu gætu notið kenslunnar
og þe]m gert sem léttast fyrir um að
sækja námsskeiðið.
Nefndin þurfti fyrst og fremst að útvega
kennara, kenslustaði og kensluáhöld. Varð
það að ráði, að leitað var til Christianía
Turnforening < um að útvega hæfan mann.
Þurfti hann einkum að vera vel fær í úti-
íþróttum. Kristjaníu félagið tók málaleit-
uninni mjög vel. Til ferðarinnar var ráðinn
Reidar Tönsberg. Er hann sérstaklega
duglegur í norskum fimleikum (turn), munu
fáir standa honum þar á sporði. Björn
Jakobsson fimleikakennari í Reykjavík, er
var einn af nefndarmönnum, lofaði einnig
Iiðsinni sínu eftir þörfum.
Heima fyrir undirbjó nefndin einnig það
er þurfti. Fekk hún leyfi fyrir íþróttavelli
Reykjavíkur og fimleikahúsi mentaskólans.
Einnig fekk hún til afnota húsrúm í stýri-
mannaskólanum. I tveim kenslustofum þar
var búin heimavist fyrir íjölda nemenda,
en í einni fór fram munnleg kensla. Nem-
endur urðu sjálfir að greiða fyrir ræstingu
þar, en að öðru var þeim dvölin þar
kostnaðarlaus. Fæði útvegaði nefndin nem-
öndunum á ýmsum stöðum í bænum.
Fyrir milligöngu nefndarinnar fengu nem-
endurnir far á skipum Eimskipafél. ísl.
gegn hálfu gjaldi. Iþróttaáhöld. svo sem
kringlu, kúlu, spjót og fl. lagði íþróttafél.
R.víkur sjálft til.
Námsskeiðið hófst 16, júní. Sóttu það
rúml. 30 nemendur frá ýmsum stöðum á
landinu. Kenslunni var þannig hagað, að
daglega voru fimleikar kendir frá kl. 9—11,
en munnleg kensla frá kl. 11 —12 f. h.
kl. 12—2 var hlé til borðhalds og hvíldar,
en kl. 2—4 ýmsar íþróttir. Kl. 5—6 var
kent sund annanhvorn dag, en hinn daginn
aðrar íþróttir. Eitthvað var þó vikið frá
þessu og stundin frá kl. 5—6 notuð til
munnlegrar fræðslu. Sundkenslan fór fram
í sundlauginni við R.vík og kendu þar
bræðurnir Jón og Olafur Pálssynir.
Auk þessa fengu nemendur þessa náms-
skeiðs bæði munnlega og verklega kenslu
í knattspyrnu. Kennari í þeirri íþrótt var
Ben. G. Waage. Luku nokkrir piltar dóm-
araprófi í Knattspyrnu. Halldcír Hansen,
læknir flutti nokkra fyrirlestra fyrir nem-
öndum, um heilsufræði. Loks hafði Steindór
Björnsson fimleikastundir fáein kvöld, með
þeim er það vildu. Alla kensluna fengu
nemendur ókeypis.
Síðustu kenslustundir þessa námsskeiðs
voru þ. 10. júlí. en aö kvöldi þess dags
var skilnaðarsamsæti í Iðnaðarmannahúsinu
fyrir nemendur, kennara og aðra stuðnings-
menn námsskeiðsins. Fór samsætið hið
besta fram. Var þá lokið námsskeiðinu.
Forgöngumenn námsskeiðs þessa hafa
sýnt af sér mesta dugnað og framtakssemi,
hafa þeir unnið mikið starf og gagnlegt
endurgjaldslaust. Eiga þeir fyrir það ó-
skifta þökk, eigi aðeins þeirra er kenslunn-
ar nutu, heldur einnig allra þeirra manna
er skilning hafa á íþróttum og notagildi
þeirra.
Aítlast er til að þeir nemendur er vóru
á námsskeiðinu geti leiðbeint öðrum um
íþróttir, hver í sínu , héraði. Má þannig
vænta þess að margir njóti þar góðs af.
Utiíþróttir eru vafalaust eitt af því sem
þjóð vorri er nauðsyn að leggja rækilega
stund á. Iín mjög er þó undir því komið,
að þeir er þær vilja iðka fái þegar í byrjun
skynsamlega leiðbeiningu hjá þeim er
sæmilega þekkingu hafa á íþróttum og
heilsufræði.
A meðan ekki er til í landinu neinn