Skinfaxi - 01.08.1922, Qupperneq 6
62
SKINFAXI
þrætuefni og breytir rnjög aðstöðu félag-
anna til samstarfs sín á milli, þá þykir
lilýða að skýra hér nokkru nánar frá til-
drögum breytingarinnar, ekki síður þareð
málið skiftir einnig hvert einasta félag á
öllu landinu, að meira eða minna leyti.
Upphaflega náði fjórðungssamband Sunn-
lendinga frá Hornafirði að Snæfellsnesi.
Þá voru fjórðungaskil látin fylgja hinum
gömlu amta takmörkum. Mjög örðugt var
það félögunum að sækja árlega fjórðungs-
þing um svo langan veg. Þannig liðu
nokkur ár þar til Héraðssamband Austur-
Skaftfellinga var stofnað og eru takmörk
þeirrar sýslu einnig takmörk þess' og fé-
lög þess fjögur. En enn var fjórðungs-
sambandið of stórt og erfitt yfirsóknar.
Var svo síðar myndað af hluta fjórðungs-
ins Héraðssamband Vestur-Skaftfellinga og
nær milli Skeiðarár og Fúlalækjar. Til
þess teljast tíu félög. Hefir svo staðið
nokkur ár, þar til í vor að fjórðungurinn
var leystur upp eins og fyr var getið.
Ætlast er til að skipun sambandanna
verði þannig, að austanfjalls sé eitt og nái
yfir Árnes og Rangárvallasýslur. Þar eru
nú seytján félög og hafa nokkur þeirra
lengi haft með sér sérstakt samband í
í íþróttamálum — auk fjórðungssambands-
ins — og hefir það beitst fyrir íþrótta-
mótum féláganna í Þjórsártúni og stund-
um haldið íþróttanámskeið. Því er síst að
neita, að slík tvískifting gat skift störfun-
um um of og skift félögunum, en kom þó
ekki að sök og nú er það fyrirbygt með
nýja skipulaginu. Lægi því beint fyrir, að
upp úr þessum íþróttasamtökum yrði hið
nýja héraðssamband stofnað.
Annað héraðssambandið nær yfir Reykja-
nesið frá Selvogi að Hvalfirði. Þar eru nú
fjögur félög: í Reykjavík, Mosfellssveit,
Kjósinni og eitt suður á Miðnesi. Miklu
fleiri félög gætu verið í þessu sambandi,
t. d. í Hafnarfirði, Keflavík, Grindavík og
vfðar. Verður það án efa síðar meir
þegar sambandið fer að geta lagt
meira til útbreiðslu félagsskaparins en nú
er gert.
Þriðja sambandinu er ætlað að ná frá
Hvalfirði að Hítará. Má gera sér bestu
vonir um framkvæmdir þess, því að þar
hefir áhuginn verið mestur á að smækka
samböndin og enda starfað þar nokkur
síðustu árin héraðssamband að sömu mál-
um og þeim sem fjórðungssambandið hef-
ir haft með höndum. Er því ekkert til
fyrirstöðu að U. M. S. Borgarfjarðar taki
beint við af fjórðungnum. Á jæssu svæði
eru nú ellefu félög.
Fjórða sambandið verður sunnanvert á
Snæfellsnesinu, myndað af þremur félög-
um. Fyrir því liggur engu minna landnám
en Reykjanesfélögunum, j)ví að norðan-
vert á Snæfellsnesi eru J)rjú mannmörg
kauptún og stórar uppsveitir, þar sem
engin sambandsfélög eru starfandi. Hafa
J)ó íþróttamenn í Stykkishólmi og t. d.
U. M. F. Dagsbrún í Miklaholtshreppi
haft samtök um sameiginleg íþróttamót
sem haldin hafa verið á víxl sunnan fjalls
og norðan. Væri ef til vill leið til að stofna
með slíkri framkvæmd til meiri samvinnu
og skipulagsbundnari félagsskapar.
Kostir nýja skipulagsins eru einkum j)eir,
að alt samstarf félaganna verður auðveld-
ara og kostnaðarminna. Héraðsstjórnir ná
auðveldlega til félaganna til eftirlits og
uppörfunar og J)ó að smáum samböndum
sé hættara við upplausn en stórum J)á
liggur J)að á verksviði Sambandsstjórnar
U. M. F. I. að gefa gætur að starfsemi
þeirra og ljá hverju Jæirra sitt liðsinni.
Ekki er heldur ólíklegt að héraðssambönd
|)essi geti eftir sem áður staðið saman
að ýmsum framkvæmdum svo sem að
hafa í sameiningu, tvö eða fleiri, bæði
íjoróttamót, íþróttanámskeið heimilisiðnað-
arnámskeið og sþifti á fyrirlestramönnum.
Bráðabirgðastjórnir J)ær, sem fjórðungs-
þingið kaus í vor til þess að blása lífs-
anda í nasir hinna nýju smásambanda eiga
nokkurt verk að vinna. Þær þurfa fyrir