Skinfaxi - 01.08.1922, Blaðsíða 7
SKINFAXI
63
haustið að hafa komið fullkomnu skipu-
lagi á samstarf félaganna, samið lög fyrir
héraðssatnböndin, fengið þau samþykt af
félögunum og staðfest af Sambandsstjórn.
Þá taka við hin jákvæðu störf samband-
anna, svo sem væntanleg námsskeið í
íþróttum, fyrirlestraferðir og eftirlit.
Skinfaxi væntir mikilla framfara af hin-
um nýju samböndum og býst við að geta
flutt góð tíðindi frá þeim áður en langt
um líður. X.
Skýrsla.
Bandalag U. M. F. Vestfjarða hefir sent
Sambandsstjórninni skýrslu um störf sín á
á árinu 1921, og hag í árslokin. Er það
mjög fróöleg skýrsla og ánægjuleg, þar
sem hún ber þess ljósan vott, að áhugi
er mikill í félögunum og starfsþrek þeirra
er óbrotið. Virðast þau harðna við hverja
raun, og væri óskandi að fleiri gætu sent
slíkar skýrslur.
Hér fer á eftir útdráttur úr skýrslunni:
Félagar eru nú 305 karlar og 149’ konur;
alls 454.
Fundir hafa verið haldnir alls 109.
Handrituð blöð, eintök 53.
Bindi bóka í bókasöfnum (3 félög) 128.
Fyrirlestrar haldnir 17.
Skemtanir haldnar 10.
Skemti- og kynnisferðir farnar 4.
íþrótta iðkendur 78.
Skuldlausar eignir kr. 9731.56.
Auk þess sem hér hefir verið talið hafa
félögin látið margt annað gott af sér leiða.
Félögin hafa oft mörg störf með höndum
sem ekki eru sett í skýrslur. Eignir þeirra
eru þarna metnar í krónum. Sú tala er
ekki nema brot af eftirtekjunni. Aðal-
árangur félagsstarfseminnar er sá félags-
þroski sem æskulýðnum hlotnast undir
merki stefnunnar. Og liann verður ekki
metinn til fjár.
Þrastaskógur.
Tillaga Guðmundar Davíðssonar um að
Ungmennafélögin reisi ferðamannahæli í
Frastaskógi, virðist vera orð í tíma talað.
Staðurinn er í þjóðbraut — rétt við braut-
ina sem liggur úr Ölfusinu austur til
Geysis og Gullfoss, yfir Grímsnes, Laug-
ardal og Biskupstungur. Er þarna mikil
umferð alt árið en auövitað langmest á
sumrin. Væri þarna sæmilegur gististaður
mundi aösókn ferðamanna verða mjög
mikil. Til fyrirtækisins þyrfti nokkurt fé
í byrjun. Hús þyrfti að reisa handa tutt-
ugu gestum, ryðja auð svæði í skóginum
og gera dálitla leikvelli, fá bát á vatnið
svo að gestirnir gætu róið þar sér til
skemtunar, ryðja gangstíga um skóginn
o. fl. Mætti vafalaust koma þessu í fram-
kvæmd næstu árin, ef félögin hér syðra
beittust fyrir málinu. Skógarvörð þarf að
setja þarna yfir sumarið til þess að verja
skóginn skemdum frá ferðamönnum og
virðist þess vegna brýn nauðsyn að hefjast
handa þegar í vetur, til framkvæmda.
íþróttaskólinn.
Ungmennafélagar og þeii' einstaklingar
sem lofað hafa eða ætla sér að styrkja
Iþróttaskólann með fjársöfnun ættu að
standa í sambandi við nefnd þá sem
sambandsþingið kaus í fyi;ra til að safna
fé til fyrirtækisins til næsta sambands-
þings. Nefndina skipa Guðmundur Jóns-
son, Jónas Jónsson og Jón Kjartanson.
Utanáskrift til nefndarinnar er Iþrótta-
skólanefndin Pósthólf 516, Reykja-
vík.
Gjalddagi Skinfaxa var 1. júlí.