Skinfaxi - 01.08.1922, Page 8
64
SKINFAXI
Haust.mót nefna íþróttafélögin Ármann
og Reykjavíkur kappmót það sem þau
halda 27. þ. m. í Reykjavík. Keppendur
eru um tuttugu. Aðal-íþróttirnar eru köst
og hlaup. Veigamesta atriðið er 5 rasta
hlaup og fær sigurvegarinn að verðlaun-
um bikar einn er gefið hefir Halldór Sig-
urðsson úrsmiður í Reykjavík.
Arngrímur Olafsson heitir ungur list-
málari. Hann er frá Ytra-Hvarfi í Svarf-
aðardal við Eyjafjörð.
Arngrímur hefir numið málaralist í Dan-
mörku í mörg ár, fór þangað í þeim er-
indum 1917. En þessi síðustu missiri hefir
hann dvalið suður á Þýskalandi við fram-
haldsnám í list sinni. Hann er nú nýlega
kominn þaðan, hingaö heim til Reykja-
víkur.
Rit Guðnuiudai' Hjaltasonar. Sam-
bandsstjórnin hefir 'nú látið prenta boðs-
bréf að ritinu og sent það öllum Ung-
mennafélögum auk margra annara vina
hins látna. Hafa margir lofað stuðningi
sínum til þess að útvega áskrifendur að
ritinu. Eiga boðsbréfin með áskrifendum
að vera komin til sambandsstjórnarinnar
í byrjun nóvembermánaðar. Ef hvert Ung-
mennafélag útvegar 10 kaupendur, þá
ætti að mega gefa bókina út næsta vor
eða seinni hluta vetrarins. Margir utan
félaganna munu safna kaupendum og ger-
ast áskrifendur. Ilins vegar ætti hverju
félagi ekki að vera ofvaxið að útvega IO
kaupendur til jafnaðar, slíkt ætti að vera
fremur auðvelt þar sem hér er um mjög
merka bók að ræða.
Hljómlist.aliúsið. Lúðrafélögin í Reyk-
javík fengu í vor þýskan kennara. Var
þess getið hér í blaðinu. Undir stjórn
hans hafa félögin sameiginlega kenslu og
hljómleika sem eitt félag og nefnast nú
Lúðrasveit Reykjavíkur. Þykir flestum
mikið til koma þeirra framfara, sem síðan
hafa orðið á leik sveitarinnar. En nú vantar
hús til afnota fyrir hið nýja félag. Til
þess að ráða bót á því, er efnt til
fjársöfnunar með samskotum og merkja-
sölu þegar hljómleikar eru haldnir. Er
bæði maklegt og þarft að styrkja slikt
fyrirtæki því að góð lúörasveit er mikils-
verður þáttur í menningarstarfi bæjar,
sem jafn fjölmennur er og Reykjavík.
Húsið hefir verið teiknað og kostnaðar-
áætlun gerð. Er því ætlað að standa
sunnarlega við Tjörnina.
íþróttamótið að Þjórsártúni. Ung-
mennafélögin Austanfjalls gengust fyrir
íþróttamóti að Þjórsártúni 1. júlí s. 1. Þar
var kept í IOO og 800 metra hlaupi, lang-
stökki og hástökki, íslenskri glímu og
reipdrætt.
Til þess að góður árangur geti náðst í
útiíþróttum, þarf að laga völlinn töluvert,
því hann er bæði of lítill og svo hallar
honum það mikið, að ekki eru tiltök að
ná verulega góðum árangri. — En sé
tekið tillit til þessara galla og ennfremur
þess, að allir sem þar keptu voru lítt æfðir,
má telja árangurinn góðan. Glímt var
um silfurskjöld »Skarphéðins« og vann
Stefán Diðriksson á Minniborg hann. —
Reipdráttur var á milli Rangæinga og
Árnesinga, er Rangæingar unnu.
Geta má Jiess að þennan sama dag var
þjóðmálafundur að Þjórsártúni. Eins og
vænta mátti voru joví margir Reykvíkingar
Jaar, og nokkrir af þeim sjálfum sér til
skammar en öðrum til skapraunar, sökum
ölæðis, illinda, barsmíða og áfloga.
íþróttavöllurinn í Reykjavík er orðinn
gersamlega ónógur til þess sem hann er
ætlaður. Svo mjög hafa íþróttaiðkanir
aukist hin síðustu ár. Veitti ekki af
tveimur slíkum leikvöllum. Knatt-
spyrnufélögin eru það mörg, að þeim
dugir tæplega einn völlur, en þó að svo
verði nú að standa um sinn, þá er
mesta nauðsyn á að gera handa þeim
sérstakan leikvang, ef ekki á að komast
kyrkingur í íþróttirnar í höfuðstaðnum.
Préntsmiðjan Acta.