Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1923, Page 8

Skinfaxi - 01.06.1923, Page 8
24 SKINFAXI stofnum að hún geti sífelt blómgast og þroskast til meiri fullkomnunar og bless- unar fyrir land og lýð. í sambandi við umræður um þessa skóla- stofnunar hugmynd, kom fram sú uppá- stunga að íþróttaskóli sá, er ungmennafé- lögin hafa verið að bera fyrir brjósti og safna fé til, mundi geta staðið og starfað innan þessarar stofnunar. U. M. F. »íslendingur« óskar þess að ung- mennafélögin athugi og ræði þetta mál, og ef þeim sýnist eins og því, að hug- myndin sé nýtileg og framkvæmanleg, að þau sýni það í verkinu. Fréttaritarinn. Ath. Þess skal getið, að þó Skinfaxi flytji ofanskráða grein, þá skuldbindur hann sig ekki til þess að fylgja því, að stofnað- ur verði lýðskóli á Þingvöllum. Bindindi. 011 þau ungmennafélög, sem eru innan Sambands U. M. F. í. verða að undirrita, í lögum sínum skuldbindingarskrá Sam- bandsins, sem byrjar á þessa leið: »Vér undirritaðir lofum því og leggjum við drengsskap vorn, að meðan við erum í félagi innan þessa sambands, skulum vér ekki neita áfengra drykkja«. Samdandið hefir þannig tekið bindindismálið sem fyrsta mál á dagskrá sína, og þar af leiðandi jafnan lagt alt kapp á að vinna fyrir það. Spanska vínaldan, sem nú flæðir yfir land- ið, er ungmennafélögum eitt hið mesta áhyggjuefni. En jafnframt mun þeim ljóst, að því meiri sem þörfin er þess betur skal vinna. Það er því bein skylda, að mál- gagn ungmennafélaganna leitist jafnan við að efla bindindisstarfsemina, eftir bestu föngum. Íþróttamót. íþróttamót Borgfirðinga verður háð i. Júlí næstkomandi. Borgfirð- ingar hafa jafnan haft mikinn viðbúnað fyrir íþróttamótum sínum, enda hafa þau fengið einróma lof fyrir að vera einhver besta sumarskemtun, sem hægt er að fá hér sunnanlands. Fleiri hundruð manns hafa hvert sumar notið gleðinnar á mót- um þessum og svo mun enn verða. Ritgerð. Tryggvi Þó'rhallsson ritstjóri hefir nýlega gefið út sérprentaða ritgerð um Brand Jónsson Hólabiskup. Höf. minnist ættar og uppeldis biskups og af þeirri greinar- gerð verður það ljóst, að Brandur var vel að heiman búinn, enda hlaut hann göfugt hlutverk að vinna. »Hann er á sinni öld hinni mesti mannasættir á íslandi«. Brand- ur lifir alla Sturlungaöld, og lætur bæði frændur og vini fyrir hamförum hennar. Þetta verður meðal annars til að kenna honum að þar sem guðslög og landslög greinir á, eiga guðslög að~*ráða. Aðalefni ritgerðarinnar er að sanna það að Brand- ur sé upphafsmaður að kirkjusamþyktinni, sem gerð var 1253, en það er kunnugt að hún skapaði áhrifamikil tímamót í sögu íslands. Ritgerð þessi varpar ljósi yfir mjög þýðingarmikinn söguviðburð. Auk þess er hún, fyrir margra hluta sakir, bæði fróðleg og eftirtektarverð. Ferðamaður. Stefán Hannesson, frá Litla- Hvammi í Mýrdal, hefir ferðast nú í vor fyrir stjórn U. M. F. í. Mun hann bráð- lega gefa stjórninni skýrslu um ferðir sínar. Prentsm. Acta h.f. — 1923

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.