Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1923, Síða 5

Skinfaxi - 01.07.1923, Síða 5
SKINFAXl 3 7 kaffisamsæti, þar setn setið var langt fram á nótt við ræðuhöld söng og hljóðfæra- slátt. I sambandi við ársþingið eru venjulega fluttir alþýðufyrirlestrar. Að þessu sinni talaði form. samb, B. G. um uppeldis- og mentamál og ritari samb. B. I. urn tvö stefnuskrár- og skuldbindingaratriði U. M. F.: Kristilega grundvöllinn og bindindis- heitið. Voru þeir heldur linlega sóttir. Þegar við héldum heim á leið fylgdu félagar Arvaks okkur langt á leið. — Veðrið var unaðslegt eins og alt af nú, og gerði sitt til að auka á ánægjuna og gera okkur þessa ferð ógleymanlega. — Eg hefi nú orðið margar slíkar ferðir til samanjpurðar í endurminningunni, og er erfitt að gera upp á milli, en þroski og festa finst mér vera að færast í félagslífið og ná öflugri tökum. B. G. Brot úr bréfi. Borgarfjörður hefir lengi verið talinn rík- ur af náttúrugæðum og hann á líka feg- urri sögu en flestar aðrar sveitir. Hann er varðaður minnismerkjum milli fjalls og fjöru, eða alla leið frá Gilsbakka og út til Borgar. Borgfirðingar hafa því gilda ástæðu til að minnast þess, að eitt af því sem vermt hefir sveitalífið best í íslenskum dölum, er það hve dyggilega menn hafa geymt hið besta og merkasta, sem gerst hefir. Má því ætla að Borgfirðingum verði að líta aftur um skut, er þeir sigla út Faxa- flóa, og horfa á fjöllin sín meðan þau eru að hverfa. A milli þessara fjalla er þeirra helgilundur, því þar liggja spor feðranna. Þeir minnast búniannsgiftu Gríms og sjá Egil í anda, sægarpinn, bændahöfðingjann og þjóðsk'áldið. Hanu víkingurinn og lielj- armennið, sem svo oft hafði staðið með brugðinn brand og ekki kunni að hræðast, var þó eitt sinn vafinn svo þétt af sorgar- skuggum lífsins, að honum fanst hann ekki hafa þrek til að lifa. En þá talaði brag- gyðjan í brjósti Egils og hann tók að kveða. Þegar skáldið stóð á vegamótum lífs og dauða, vann hann það kraftaverk, sem staðist hefir eyðing aldanna. Sonatorrek er síbrennandi viti, sem bjarg- að hefir nútíðarmönnum frá blindskerjum óvissunnar og leitt þá að hugarlöndum kynslóðar, sem lifði fyrir meir en 9 öld- um. Það er minningin um ofurmennið Egil, sem átt hefir sinn sterka þátt í því, að vekja karlmennskuþrekið og íþróttaáhug- ann í nútíðar Borgfirðingum. A sviði íþróttanna hefir Ungmennasam- bandi Borgfirðinga tekist að lyfta Grettis- tökum, sem eru margföld ofraun einstök- um mönnum, en félagslundin á létt með að vinna. Eitt af þeim er íþróttamót hér- aðsbúa, sem nú er haldið hvert sumar á Hvítárbökkum. Þar er þreyttur knattleik- ur að fornunr sið og kept um verðlaun fyrir glímur, sund, hlaup, stökk, kúluvarp, spjót- kast o. fl. En nútíðarkynslóðin hefir komist feti framar en fornmenn stóðu. Henni er það ljóst, að dagleg störf á aö setja á bekk með íþróttum og listum. Þess vegna hafa Borgfirðingar orðið fyrstir til að þreyta kappslátt á leikmótum sínum. En það er annað og meira sem vakir fyrir Borgfirðingum en að sýna íþróttir og keppa um verðlaun einu sinni á ári. Þeir hafa tekið íþróttirnar í þjónustu uppeldis- ins með því að liafa árlega námskeið, á einum eða fleiri stöðum,í landnámi Skalla- Gríms. Þeir, sem námskeiðin sækja, kenna svo aftur sveitungum sínum. Á þennan hátt tekst þeim að minnast hinna frægu fornkappa sinna og skapa um leið félags- lund og starfshætti í fullu samræmi við kröfur nútímans. Það var endurminningin um forna frægð- ardaga og framfaraþrá hinnar tuttug- k..

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.