Skinfaxi - 01.10.1923, Síða 8
64
SKINFAXI
ið að endurreisa liið forna skólasetur
og höfuðból. Möðruvelli i Hörgárdal.
En Iivað sem um það er, þá er liitt víst,
að formaður „Kynningar“ hefir sýnt að
fámennu ungmennafélagssambandi er
það kleyft að hrynda af stað dýrum
og erfiðum umbótastörfum.
Líklegt er að svo efnilegt samband
scm „Kynning“ er, geri sem fyrst ann-
að tveggja, að ganga í Samband U. M.
F. í. eða sameinast Héraðssambandi
U. M. F. E. og mundi sú leiðin liollust
áhugamálum beggja eyfirsku samband-
anna.
Nýtt blað,
J?að mun ekki of mælt þó sagt sé að
Iivergi hafi íslensk ungmennafélög not
ið meiri lýðhylli en í Eyjafirði. t þvi
liéraði eru langflestir ungmennafélagar,
ef miðað er við fólksfjölda í sýslum og
bæjum landsins. Hvergi eru félagsstörf-
in margbreyttari en hjá Eyfirðingum
og þar liafa fæðst margar þær hugmynd-
ir um félagsmál, sem nútíðin notar og
framtíðin mun fullkomna. Eyfirðingar
hafa orðið flestum öðrum happadrýgri
hvað það snertir að njóta lengi fullting-
is sinna bestu manna. Ýmsir þeir, sem
á fyrstu árum eyfirsku ungmennafél-
aganna höfðu heitastan áhuga fyrir
stéfnu þessari,, eru nú starfandi ung-
mennafélagar og styðja þá yngri með
ráðum og dáð.
Nú í haust réðst Héraðssamband U.
M. F. E. í að gefa út vélritað blað. Mun
það koma út sex sinnum á ári. Blaðið
ræðir ýms mál, sem samband þess varð-
ar og mun leitast við að efla nánari
kynning meðal félagsmanna en kostur
hefir verið á hingað til.
Fyrsta blaðið kom út snemma í sept-
embcr s. 1. og flutti meðal annars grein-
ar um iýðskólamál og stofnun heilsu-
hælis norðanlands, sem margir norð-
lendingar hafa nú mikinn hug á að fá
sem fyrst.
Meðan blað þetta er í höndum glöggra
og gælinna manna, má ætla að það verði
ungmennafélögunum að miklu gagni.
„Gróður”,
Lítið hefir vcrið unnið að ungmenna-
félagsmálum í Strandasýslu. J?ó skal
geta þess að ungmennafélagið „Gróður“
í Kollafirði var stofnað árið 1916. Fél-
agið er í Héraðssambandi Dalasýslu.
Sagt er að áhuginn fyrir félagsmál-
um sé allmikill i þessu félagi þrátt fyrir
erfiða aðstöðu, J^ví „Gróður“ er langt
frá öllum öðrum félögum. Næst liðinn
vctur beittist félagið fyrir þvi að bygð
yrði stór sundlaug til afnota fyrir sýslu-
búa og fékk því máli framgengt með
aðstoð sýslunefndar.
Nýlega hafa Skinfaxa horist bréf um
það, að í Steingrímsfirði og viðar J?ar
um sveitir, sé vaknaður allmikill áhugi
fyrir því að stofna ungmennafélög. Og.
af því að mikið er þar um ötula dugn-
aðarmenn, gerir Skinfaxi sér góðar von-
ir um framtíð ungmennafélaganna á
Ströndnm.
Ath.
Þess ber a'ð gæta, að orðið „segjast" hef-
ir fallið í burt úr grein sem stóð í síðasta
blaði með yfirskriftinnl „Góðar frjettir.“
Munið að afgreiðsla Skinfaxa er í Berg-
staðastræti 51. Skrifið þangað.
{pgr* Munið að afgreiðsla Skin-
faxa er í Bergstaðastræti 51. —
Skrifið þangað.
Fjulagsprentsmiðjan