Skinfaxi - 01.09.1924, Síða 8
72
SKINFAXI
afleiðinga stríðsins var mjög dýrt að
byggja á þessum árum. En ekkert get-
ur hindrað góðan vilja. Skólinn varð
að komast upp, hvað sem hann kostaði.
Marga örðugleika varð samt að yfirstíga.
Menn, sem berjast fyrir hugsjónum,
hafa sjaldan mikla peninga. Öfundsýki
kyrstöðumanna, lætur framsækna og
djarfa foi-ystumenn aldrei í friði. Bukh
fékk ekki síður að kenna á þessu en
aðrir menn, þótt hann nú standi sigri
hrósandi yfir stéttarbræðrum sínum í
Danmörku.
Skólinn hefir nú starfað í 5 ár og á
annað þúsund manns, bæði konur og
karlar, hafa lokið námi við hann. Allir
geta þvi skilið, liversu mikla þýðingu
hann hefir fyrir leikfimisfélögin í land-
inu.
Síðastliðið sumar var lokið við að
byggja nýtísku íþróttavöll sem liggur
liér um bil 100 m. frá skólanum. Auk
hans eru margir fleiri vellir í landeign
skólans, sem notaðir eru fyrir knatt-
leiki og aðrar úti-æfingar. Á næsta vori
verður sennilega hyrjað á að byggja
sundhöll við áðra hlið leikfimisskólans,
þá fyrstu í Danmörku. Verður hún bæði
stór og skrautleg. Áformað er að full-
gera hana það sama sumar, svo að nem-
endur skólans geti lært sund veturinn
eflir.
pótt skólinn í Ollerup hafi mesta
þýðingu fyrir Dani, liafa samt aðrar
þjóðir notið góðs af starfsemi Niels
Bukhs. Ivonur og karlar frá fjölda
mörgum löndum hafa komið til skól-
ans. Ýmist dvalið þar langa tíma, eða
verið þar sem vanalegir nemendur.
Enda mun ekki ofmælt, þó eg segi að
leikfimisskólinn í Ollerup sé mesta
íþróttaheimili á öllum Norðurlöndum
og líklega þótt viðar væri leitað.
Á Olympíuleikjunum 1912 og 1920
var Niels Bukli með leikfimisflokka
Dana. þar að auki hefir hann ferðast
með leikfimisflokka til Englands,
Frakklands, pýskalands, Austurríkis,
Sviþjóðar, og síðast en ekki síst, til
Ameríku siðastliðið haust. Fór hann
þangað með 30 manns, 2 flokka, konur
og karla, og hafði um 40 sýningar í
ferðinni.
Eins og fyr er sagt, hefir Niels Bukh
mætt mótspyrnu og lent i deilum út af
leikfimisstarfsemi sinni. Hér skal ekk-
ert um það sagt, hvor málsaðili hafi
borið þar hærri hlut frá borði. En eitt
veit eg, að verk hans í Ollerup sýna sig.
Niels Bukh er höfðingi í lund og
djarfnr i framkomu og hverjum þeim
manni tryggasti vinur, sem trúir á
framtíðina og sigur hins góða. Og hver
maður sem kynnist honum, hlýtur að
verða snortinn af starfslöngun lians og
áhuga. Má sjá þess merki við bænda
skólana á Hólum og Hvanneyri, að leik-
fimiskennarar þeirra hafa dVahð hjá
honum. Síðar verður ef til vill tækifæri
til að minnast á hvernig starfsemi hans
getur orðið okkur íslendingum til fyr-
irmyndar.
Jón porsteinsson
frá Hofsstöðum.
Mötunejdi.
Mötuneyti Kennaraskólans og Sam-
vinnuskólans reyndist bæði gott og
ódýrt síðastliðinn vetur, enda lítur út
fyrir, að það verði fjölsótt næsta skóla-
ár. því ættu allir nemendur þessara
skóla og aðrir, sem kynnu að vilja
kaupa fæði í mötuneytinu, að sækja um
það fyrir 20. september n. k. til Sigur-
geirs Friðrikssonar, Sambandshúsinu.
Reykjavík.
FJEI.AGSPHENTSMIÐJAN