Skinfaxi - 01.02.1928, Blaðsíða 4
20
SKINFAXI
Frá héraðssambandinu
Skarphéðinn.
pað hefir dregist helsl lil lengi, a'ð senda Skinfaxa
fréttir af starfi ungmennafélaganna liér eystra þetla ár.
Hér kemur þá liið helsta.
Héraðsþing „Skarphéðins" var háð að pjórsártúni
<S.—10. janúar síðastliðinn. Sátu það 26 fulltrúar frá
14 félögum. Ennfremur héraðsstjórnin og einn gestur,
alls þrjátíu. ]7ar voru rædd mörg dagskrármál U. M.
F. o. fl. Lengstan tíma tóku umræðurnar um skólamál
Sunnlendinga. U. M. F. hér hafa að sjálfsögðu látið
það mál nokkuð til sin taka, þó að forysta þess haí'i
verið i höndum sýslunefnda. En nú hafði málinu verið
sigll í strand, svo sem kunnugt er, út af staðarvali sýslu-
nefndar Árnesinga. Var því tvísýnna en nokkru sinni
fyr um framgang þess og afdrif öll. Töldu ýmsir að
heppilegast mundí vera að skifta um forystu. Einkum
var því beint að U. M. F., þar sem hugsjónir lýðskóla
og ungmennafélaga eru svo samtvinnaðar. Lýðskóla-
mál er því sjálfkjörið áhugamál allra U. M. F. Hér-
áðsþingið ræddi því málið á þeim grundvelli, hvort
æskilegt væri að U. M. F í Árnes- og Rangárvallasýsl-
um tækju að sér foryslu þess framvegis. Var það ein-
róma álit þingsins, að tilraun skyldi gerð í þá átt, ef
það væri ákveðinn vilji félaganna og samkomulag næð-
ist við hlutaðeigandi sýslunefndir. Sérstakur lagabálk-
ur var samþyktur um það efni og kosin ný skólanefnd.
Síðan fór fram atkvæðagreiðsla heima í félögunum, og
reyndust 13 af 16 eindregið með því, að taka að sér
forystuna, en 3 á móti. Eitt þeirra þó skift í málinu.
Úr þessu varð ekkert sökum þess, að sýslunefndirnar
vildu ekki sleppa málinu úr liöndum sér, en buðu U.
M. F. samvinnu að nokkru leyti. Sú samvinna hefir