Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1928, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.02.1928, Blaðsíða 11
SKINFAXI 27 um land alt. ]?au ferðuðust bæ frá bæ og sveit úr sveit, tötrum klædd og heimilislaus. íslensk gestrisni var þeim alt. Örlæti hennar hefir oft verið við brugðið, en þó mun það vart ofmælt, að stundum liafi faðmur hennar reynsl þessum vesalingum kaldur. Margar sögur liafa gengið af islensku förufólki, um sumt af þvi er það sagt, að það hafi vart verið í húsum Jiæft, oftast launað gott með illu, og ekki ver- ið til neins nýlt. Hinsvegar bar margt af því það með sér, að það var fætt til einhvers betra en þess, sem það hlaut. Sumt af því átti ótæmandi fróðleiksfýsn, var sílesandi og síritandi. I flokki þess voru menn, sem reyndust fróðir um margt, orðhagir og skjótir til svara. Aðrir höfðu yndi af að kynnasl náttúrunni, fegurð liennar og fjölbreytni, söfnuðu grösum og bergtegund- um, eða fóru með læknislyf. Enn aðrir voru dverghag- ir og lék þvi flest í liöndum þeirra. Samtíð þessara manna hafði óljósa tilfinningu fyrir því, að þeir voru að vissu leyti höfði Iiærri en fjöldinn að andlegu at- gervi. þeir höfðu hæfileika til að sjá betur og finna sárar til en aðrir, en þá skorti tækifæri til þess að njóta, eins og konungabörnin sem nornirnar hneptu í álagafjötra. Einn af þessum vel gefnu en einkennilegu mönnum var Mylnu-Kobbi. Rangt væri það mjög að kalla hann betlara eða ónytjung, hann beiddist vist aldrei gjafa, og var hinn mesti vinnumaður, enda varð hann allvel fjáður og krafðist þó sjaldan launa fyrir verk sín, en mjög var hann einkennilegur í háttum, og ofl á far- aldsfæti, og áreiðanlega liefði miklu meira mátt verðn úr hæfileikum hans en raun varð á. Jakob var fæddur í Skagafirði 1823, og dvaldi löng- um norður þar. Hann var hinn mesti hagleiksmaður á alt sem hann gerði, en einkum lagði hann stund á járnsmiði og steinhögg. Voru allar smiðarhansframúr- skarandi traustlega gerðar, og þóttu sumar þeirra unn-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.