Skinfaxi - 01.02.1928, Qupperneq 7
SKINFAXI
23
legt heita, a'ð slikt skuli eiga sér stað. Spillir það mjög
fyrir árangri slíkra nióta, sem þessara.
Noklcur félög hafa haldið útisamkomur í sveit sinni,
t. d. II. M. F. Biskupstungna við Geysi, U. M. F. Hruna-
manna á Álfaskeiði og U. M. F. „J?órsmörk“ og „Dags-
brún“ á Kanastaðabökkum. Á mótum þessum hafa ver-
ið ræðuhöld, söngur og íþróttakeppni. Eru mót þessi
hæði til gagns og gleði hlutaðeigandi sveitum, gefa fé-
lögunum góðar lekjur og örfa íþróttaáhuga ungra
manna.
„Skarphéðinn“ hefir tekið upp nýtt fyrirkomulag
um fyrirlestrastarfsemi og kynningu milli U. M. F. pvi
verður best lýst með því að taka liér upp þann hluta
lillögu fræðslumálanefndar liéraðsþingsins 1926, er um
þetta fjallar, og tdjóðar svo:
„pingið samþykkir, .... að Jiver tvö félög innan
sambandsins skiftist á mönnum, þannig, að livert félag
sendi einn eða fleiri af hestu mönnum sinuni i heim-
sókn til einhvers nágrannafélags og gagnkvæmt. Hér-
aðsstjórn ákveður Iivaða félög skiftast á mönnum.
Skulu sendimenn þessir koma á fundi, segja fréttir al'
félögum sínum og flytja erindi um eittlivert fræðandi
efni. Móttökufélögin sjái þeim fyrir öllum heina.“
Sama fyrirkomulag var samþylct á héraðsþingi í ár.
petta hefir reynst mjög vel, þar sem því liefir verið
framfylgt, en noklcur tregða er á framkvæmdum enn
þá. J?etta er ódýrara en að senda fyrirlesara um svæðið,
en eykur miklu meira kynningu milli félaganna. Good-
Templara-reglan hér syðra hefir tekið þetta upp eftir
U. M. F„ en nokkuð á annan veg. J?ar eru þaö miklu
stærri hópar, sem lieimsækja nágrannastúkurnar, en
vafasamt hvort það er eins heppilegt, þegar til léngdar
lætur. — J?ess má geta, að hugmynd þessi er upphaf-
Iega komin frá Ólal'i Túhals listmálara.
I íþróttamálum er stofnun íþróttaskólans i Hauka-
<tal mesta nýungin. Er það að þakka dugnaði og áhuga