Skinfaxi - 01.03.1929, Side 1
Mars 1929. 3. heftí.
Þjóðbúningar.
Þvi verður ekki neitað, að framkvæmdir með þjóð-
búning karia hafa orðið daufari en skildi. Þó málinu
miði að visu áfram, þá er sá framgangur svo hægfara,
að betur má ef duga skal.
Oft hefi eg verið að hugsa um hvað valda muni
þeirri deifð og framkvæmdaleysi, sem virðist ríkja meðal
almennings á þessu sviði; og hef eg komist að þeirri
niðurstöðu, að ástæðan gæti vart önnur verið en sú, að
almenningur gerir sér ekki Ijóst, hvað vaki fyrir þeim
mönnuin, sem berjast fyrir þessu máli. Menn gera sér
heldur ekki alment grein fyrir því hvaða áhrif það muni
hafa, ef þjóðbúningar verða almennir. Tiigangur þjóð-
búningshreyfingarinnar er meðal annars sá, að vinna á
móti hinum skaðlegu áhrifum tiskunnar.
Eg heid að það sé ekki viða í heiminum jafn smá-
salarlegur eltingarleikur við tískuna, eins og hér á landi.
Enda hefir það altaf viljað við brenna, að hvergi er
meiri oddborgaraskapur og hégómagirni en í litlum
b«fmn og litfum jjfóðfélögum.