Skinfaxi - 01.03.1929, Blaðsíða 10
42
SKINFAXI
komumenn, bæði útlendir og innlendir, hefðu gaman af
þvl myndasafni.
Læt eg hér nú staðar numið, og bið „Skinfaxa' að
athuga þessar tillögur allar og gera athugasemdir
við þær.
Háteigi við Reykjavik, 14. jan. 1929.
Halldóra Bjarnadóttir.
Áskornn.
Á næsta vori verður í sambandi við fermingu ung-
menna hafin fjársöfnun um land alt til hjálpar bágstödd-
um börnum. Munu prestar gangast fyrir henni hver i
sfnu prestakalli og ýmsir fleiri verða þeim til aðstoðar.
Opinber skilagrein verður gerð fyrir fé því, er safnast,
og nánar skýrt frá því sfðar, hvernig því verður varið.
En markmiðið er að vinna að því, að bágstödd börn
hér á landi megi eignast góð heimili. Þjóðin má ekkert
mannsefni missa.
Vér sem kosnir höfum verið í nefnd til þess að
vinna að þessu máli, leyfum oss að heita á alla lands-
menn að bregðast vel við fjársöfnun þessari og minu-
ast orða Krists: „Svo framarlega sem þér hafið gert
þetta einum þessara minna minstu bræðra, þá hafið þér
gert mér það“.
í febrúannánuði 1929.
Bjarni Jónsson, dómkirkjuprestur, Reykjavík
Guðmundur Einarsson, prestur, Mosfelli
Hálfdán Helgason, prestur, Mosfelli
Ólafur Magnússon, prófastur, Arnarbæli
Þorsteinn Brieni, prestur, Akranesi
Ásmundur Guðmundsson, dósent, Reykjavik
(ritari nefndarinnar).