Skinfaxi - 01.04.1929, Qupperneq 1
Apríl 1929. 4. hefti.
Stefnuskrá Ungmennafélaga.
Samkvæmt tstefnuskrá U. M. F. i. höfum við ung-
mennafélagar tekist svo mjög þýðingarmikið hlutverk á
hendur, að varðveita og efla allt, sem er ramíslenskt, og
horfir hinni íslensku þjóð til heilla. Ungmennafélagar
hafa með stefnuskrá sinni gerst útverðir islensks þjóð-
ernis og þjóðmenningar. Væri ekki úr vegi, að félögin
athuguðu stundum stefnuskrána, og reyndu að skygn-
ast eftir liinum stóru verkefnum, sem felast á bak við
hana. — Því að þar sést hið uhga og ónumda ísland
framtíðarinnar, I árroða hyllinga og ótæmandi verkefna,
sem um ókomiun tíma mun ávalt verða til úrlausnar
handa komandi kynslóðum.
í mínum augum er það eitt af ómetanlegum kostum
stefnuskrár U. M. F. í., að hen.ni er ekki takmarkaður
bás, að hún er í innsla eðli sínu lífsfrjó, rneö mikið
vaxtrarrými framundan.
Eg hygg, að ungir íslendingar ókominua kynslóða,
geti alltaf ritað nöfn sín undir stefriuskrána, vegna þess,
að livei' heiibiigöur unglirrgur ber lífsvöxt og lífsþrá í