Skinfaxi - 01.04.1929, Blaðsíða 13
SKINFAXl
6l
Þurfi umfrarn allt að vera mynd á vindlingaöskju, þá
ætti hún að vera af dýri. Séu vindlingarnir sterkir, þá
má hafa mynd af ffl, séu þeir kraftlitlir, þá af Iús! Best
auðvitað, ef hægt væri, að útrýma öllu, sem nefnt
er vindlingar. Cromwell er altof mikill og göfugur mað-
ur til þess, að hafa mynd hans á vindlingaöskjum.
Hversvegna ættu t. d. allir meiri og minni stjórn-
málamenn og íþróttamenn að vígja vindlingaöskjurnar i
framtíðinni. Bæri það vott um, að meðal þeirra finnist
flestir, sem unna vindlingunum, og að þeir hafi með
reykingum sírium stutt mest að uppgangi þeirra, sem
versla með vindlinga. Þá er ekki að undra, þótt vind-
lingaverslunarheimurinn heiðri þessa „gulu riddara" með
einhverju minnismerki.
Það ætti samt eitthvað táknrænna að vera á vind-
lingaöskjum, eins og t. d. inynd af beinagrind með orf
og ljá, brugðið um öxl, og rétti hún vinstri hendina til
tveggja krjúpandi tískutildursmanna, sem gripu utn úlf-
lið hennar, og kreistu og sygju bera og mjóa kjúku-
gómana málaða „nikotin“-eiturlita (gula).
V. Ö. þýddi.
Ekki láta íslendingar standa á sér í eftirhermuaf-
afkáraskap auglýsinganna. Vindlakassa hefi ég séð með
mynd Jóns Sigurðssonar forseta, Bjarna frá Vogi, og
fána íslands og skjaldarmerki. Hélt ég þó að forsetinn
og frelsismerkið okkar ætti að eiga veglegra sæti, en
að vera notað sem tálbeita fyrir tóbaksnautnasýki lands-
manna! Furða hvað fjandanum tekst!
Rítstjórinn.