Skinfaxi - 01.04.1929, Síða 10
58
SKINFAXI
þykjast á hverjum tíma hafa nóg með að búa sig við
þvi, sem vissa er fyrir. .Jeg tel mestar likur ti! að allur
þorri af fólki, sein eitthvað kynni að leggja til sýningar,
bíði með að vinna þessháttar, meðan það ekki veit
nema, ef vera má af líkum og getgátum, — hvort nokkur
sýning verður. Velflest af því fólki hefir nóg annað fyrir
stafni, og sýningariðja hlýtur allajafna að verða nokkuð
á annan veg, en það sem ætlað er til daglegra þarfa.
Jeg minnist, að þar sem jeg heyrði fyrst umræður um
hátiðahaldið 1930, var talað um sýningu, sem yrði fjöl-
þætt, sýning helst á öllum föngurn landsins og fram-
leiðslu. Nokkuð í þá átt var sýningin hjer 1911. Nú
hefir mjer skilist, að fyrir allnokkru hafi Iðnaðarmenn
algerlega hætt við sýningu. Landbúnaðarsýningu hefir,
allt til þessa, lítið verið talað um. Sjávarútvegssýning
þykir síst liklcgri. Listamenn liafa ekkert um listasýningu
kunngert, enda hafa þeir nokkuð aðra aðstöðu. — Qæti
nú ekki margt fólk alveg eins, látið sjer detta það í hug,
að ekkert yrði úr heimaiðjusýningunni heldur.
Jeg vil taka það fram, til að fyrirbyggja allan mis-
skilning, að jeg geng lijer útfrá því, sem almenningi má
vera kunnugt. Þó að stjórnir einhverra fjelaga, eða ein-
stakir menn, kunni að hafa haldið fundi um málið, hvort
heldur í Reykj vík eða annarsstaöar, eru það engar upp-
lýsingar fyrir almenning.
Af þessu framansagða verð jeg að telja það óhjá-
kvæmilegt, að eigi eitthvað að verða úr þessari sýningu
nema umtalið eitt, þá á hún að auglýsast opinberlega það
allra fyrsta, og eigi síðar en í vor eða fyrri hluta sum-
ars. Skiftir engu í því efni, liver fyrir þessum framkvæmd-
um gengst. Hvert sem það væru einstakir menn í sain-
ráði við hátiðanefndina eða viss fjelög, eins og Heim-
ilisiðnaðarfélag íslands, ellegar á annan hátt fyrfr kom-
ið. Jeg tel sjálfsagt, og hefi jafnan haldið því fram að
stjórn Heimilisiðnaðarfjelags íslands eigi að hafa aðal-
ráðin með þessa sýningu. — En þar sem vitanlegt er,
að Heimilisiðnaðarfielag íslands eru aðeins fáeinar konur