Skinfaxi - 01.05.1932, Side 28
124
SKINFAXI
liklegasL til þess að vinna gagnstætt stefnu U. M. F. og verða
þeim fótakefli.
Áfengismálin hafa jafnan verið þjóð vorri meira en lítil
vandamál, siðan hún tók að fást við þau. En aldrei, síðan
U. M. F. hófu störf, hafa þau verið jafn-alvarleg vandræðamál
og nú. Áfengishættur liggja um allt og steðja jafnt að ungum
mönnum sem rosknum: gæfu þeirra, vili, heilbrigði, lifi, lim-
um og fé. Fjölmenn samtök og sterk nægja hér ein til hóta.
Hér á það við, sem skáldið kvað: „1 s 1 a n d i r i ð u r á, a ð
enginn skerist úr lei k.“
Enginn prófsteinn verður lagður á U. M. F., sá er meira sé
að marka en áfengismálin, á þeim alvarlegu tímum, sem nú
iiða. Þar reynir á þroska þeirra og drengskap, haldgæði ætt-
jarðarástar þeirra og vilja jjeirra til að standa við stóru orð-
in. En þvi er ver og miður, að U. M. F. standast próf þetta
mjög mikiu laklegar en þeir mundu óska, sem trúa vilja á
dug og drengskap æskunnar —- íslenzkrar fyrst og fremst.
Tjáir eigi að vér leynum sjálfa oss því, ungmennafélagar, að
í þessu efni eru á félagsskap vorum blettir, sem hann hefir
bæði hneisu og hnekki af. M á a 11 s e i g i v i ð s 1 i k t u n a.
Sambandssljóri hefir spurzt fyrir um ástand félaganna í
bindindisefnum og fengið svör frá 43 formönnum (af 80).
Eftir þeim svörum að dæma er bindindisheitið:
Ekki brotið í ........................... 7 félögum
Lítið brotið í ......................... 21 —
Mikið brotið í ......................... 12 —
Ekkert eða afnumið í .................... 3 —
Brotalausu félögin sjö eru öll á Norður- og Yesturlandi, og
þar virðist ástandið yfirleitt vera betra í þessu efni, en sunn-
anlands. —■ Glöggt virðist það, að þau félög séu þróttarmest
og bezt vakandi, er leitast við að balda skildi sinum hrein-
um í bindindisefnum.
Þetta er mál, sem snertir þig, félagi, og þú verður að láta
til þín taka. Finnst þér unandi við það ástand, sem er i U.
M. F., í bindindisefnum? Gelurðu hugsað lil ])ess án sárrai’
blygðunar, að félögin lyppist niður undir þeim heitum, sem
þau liafa gefið um þessi efni á liðnum fjórðungi aldar, og
gefist upp á því, að vera bindindisfélög? Eða leggurðu hug
og hönd að þvi, að reka af félögunum og síðan þjóðinni alla
smán, er frá áfengi stafar? Þú svarar — í verki!
Félagsprentsmiðjan.