Skinfaxi - 01.11.1967, Síða 13
Valdimar Öskarsson
Staða og hlutverk
ungmenna-
félaganna
Með samþykkt sambandsráðsfundar
UMFf, sem haldinn var á Sauðár-
króki 25. sept. var ákveðið að kjósa
fimm manna milliþinganefnd, og
skyldi hlutverk nefndarinnar vera að
gera athuganir á stöðu og hlutverki
ungmennafélaganna í íslenzku nútíma
þjóðfélagi og gera tillögur um starf-
semi UMFl í náinni framtíð.
í þessa nefnd kaus sambandsráðs-
fundurinn, sem aðalmenn:
1. Valdimar Öskarsson
2. Kristján Ingólfsson
3. Óskar Ágústsson
4. Jóhannes Sigmundsson
5. Guðmund Sigurðsson
og til vara:
1. Úlfar Ármannsson
2. Magnús Stefánsson
3. Sveinn Jónsson
4. Stefán Jasonarson
5. Snorra Þorsteinsson
Nefndarmönnum var í upphafi Ijóst
að erfitt væri að gera þessum málum
tæmandi skil og ógerlegt með öllu
varðandi ýmsa þætti þessa verkefnis.
1 fyrsta lagi átti nefndin að gera
athuganir á stöðu og hlutverki ung-
mennafélaganna í íslenzku nútíma-
þjóðfélagi.
Til þess, að hæga væri að tala um
stöðu félagsskaparins í íslenzku nú-
tíma þjóðfélagi var óhjákvæmilegt
að gera sér nokkra heildarmynd af
vík, er hátt til himins og vítt til
veggja. — Hér er unaðslegt að dvelja
á sólríkum sumardegi. Þetta myndar-
lega, fallega fólk, sem hér er saman-
komið, gefur fyrirheit um farsæla
framtíð þessa byggðarlags.
Megi ykkur ganga allt í haginn á
ókomnum tíma: Síldin koma upp á
Austurlandi á ný og sólin verma aust-
firskar sveitir og skila bændum og
búaliði auknum verðmætum úr skauti
jarðarinnar og að síðustu: Megi aust-
fisku ungmennafélögin eflast og
æskufólk þessa héraðs ávallt hafa
verkefni við sitt hæfi og drengskap
og dug til að leysa þau.
SKINFAXI
13