Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 14
útbreiðslu og starfi hreyfingarinnar á þeim tíma sem liðinn er frá stofn- un fyrstu ungmennafélaganna og stofnun UMFÍ fyrir 60 árum. Allur samanburður hér að lútandi er þó verulegum erfiðleikum bund- inn bæði vegna skorts talnalegra gagna og sérstaklega vegna þeirra gjörbreytinga sem átt hafa sér stað í íslenzku þjóðfélagi á þessu tímabili. Fyrsta og mikilvægasta atriðið er flutningur fólksins úr strjálbýlinu í þéttbýlið, en láta mun nærri að um 80% þjóðarinnar hafi búið í strjálbýii landsins á fyrstu árum ungmennafé- laganna hér á landi. Á þessu sviði hefur orðið gjör- bylting, þannig að nú býr aðeins um 15% af íbúum landsins í strjálbýii, þ. e. a. s. í sveitum landsins. öllum er ljóst að slíkur tilflutning- ur fólks hefur miklar breytingar í för með sér, ekki síður félagslega en á öðrum sviðum. Og hver hefur orðið raunin á hjá ungmennafélagshreyfingunni í þessu umróti? All víðtæk athugun leiðir í ljós, að ungmennafélögin hafi haldið sinu og það fyllilega á mjög mörgum stöðum á landinu. Prósentutala ung- mennafélaga miðað við ibúafjölda er víða jákvæð, og verkefnakönnun leið- ir í ljós að þar hefur fátt eitt fallið niður af því sem áður var iðkað. Hinsvegar hefur margt nýtt bætzt við, og segja má að ungmennafélögin hafi víða unnið, og vinni enn í dag, að sínum verkefnum af mjög mikilli ár- vekni, einlægni og trú á landið og fagra framtíð þess og þeirra lcyn- slóða, sem eiga eftir að ala hér aldur sinn, byggja upp og leysa verkefni við breyttar aðstæður nýrra þjóðfé- lagshátta. Vissulega hafa ýms byggðalög orð- ið nokkuð útundan varðandi störf ungmennafélaganna og það dylst engum, að á þessu sviði sem öðrum veltur slíkt félagsmála- og uppbygg- ingarstarf á forsvarsmönnum til þess að kalla fram og virkja einstaklings- eðlið hjá hverjum og einum og beina því á vissar brautir í hugsun og fram- kvæmd. Andi ungmennafélagsskaparins er ávallt ungur, hugsun og starfshættir þessa félagsskapar hafa slíka aðlöð- unarhæfni og þá mótunarmöguleika, að það getur ávallt samrýmst aldar- andanum á hverjum tíma. Er hægt að benda á fjölmörg dæmi því til sönnunar, en eitt nægir til að sanna það sem hér er sagt, það eru lands- mót UMFl, þessir ,,01ympíuleikar“ UMFf sem haldnir voru síðast með sérstökum glæsibrag á Laugarvatni árið 1965 með á áttunda hundrað þátttakenda í keppnisgreinum, frá 17 sambandsaðilum. f I' ■ Starfshættir I öðru lagi var nefndinni gert að gera tillögur um starfsemi UMFl í náinni framtíð. Nefndin lítur svo á, að í raun og veru sé hér um tvíþætt verkefni að ræða: 1. Uppbygging ungmennafélag anna heima í héruðum og efling héraðssambandanna. 2. Skipulagning á framkvæmda- stjórn og forystu UMFf. Uppbygging ungmennafélaganna er að sjálfsögðu hornsteinn hreyfing- arinnar. Með fyrrgreindum breyttum 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.