Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 22
Af vettvangi ungmennafélaganna ÁRSÞING UÍA Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands var haldið á Iðavöllum, félags- heimili Vallamanna á Héraði, dagana 18. og 19. nóvember s. 1. Þingforsetar voru Gunnar Guttormsson og Kristinn Ivarsson. Tvö umfangsmikil og mikilvæg mál mót- uðu störf þingsins. Það var annarsvegar endurskipulagning sambandsins og hinsveg- ar landsmótsmálin. Mikill áhugi ríkir fyrir þvi að framkvæmd landsmótsins á Eiðum verði með sem mest- um sóma að sumri, og var undirbúningur ræddur og skipulagður. Skipulagsmálin voru mjög á dagskrá, eins og áður segir. Voru samþykkt ný lög fyrir UÍA á þinginu. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir auknu og sjálfstæðara starfi sérráða í hinum ýmsu íþróttagreinum og einnig i ýmsum greinum félagsmála. Sérráð eru mynduð fyrir hin ýmsu svið, ef minnst þrjú félög óska þess. Sérráð eru kosin á ársþing- um. Stjórn UlA og formenn mynda sambands- ráð. Öll fjármál sérráðanna eru háð eftirliti sambandsgjaldkera. Sérráðin gera tillögur um niðurröðun móta í sinni grein, en sam- bandsráðsfundur ákveður endanlega móta- skipulagið og hefur æðsta ákvörðunarvald i fjármálum. 1 þessu sambandi má geta þess, að Austlendingar hafa mikinn hug á að komið verði á fót sérstökum riðli fyrir Aust- urland í 3. deild Islandsmótsins í knatt- spyrnu. Mikill íþróttaáhugi er á Austurlandi. Starfsíþróttir eru nú í fyrsta sinn á dag- skrá þar eystra, og var sérstök starfsíþrótta- kennari á Seyðisfirði mun stjórna og þjóðdansasýningu, sem frú Elín Óskarsdóttir á Eskifirði mun stjórna. Þá mun og fara fram söguleg leik- sýning og kórar syngja. nefnd kosin á þinginu. Kristján Ingólfsson skólastjóri á Eskifirði var endurkjörinn formaður UlA og aðrir í stjórn: Jón Ólafsson Eskifirði, varaformað- ur, Magnús Stefánsson, Fáskrúðsfirði, ritari, Björn Ágústsson, Egilsstöðum, Sveinn Guð- mundsson, Eiðum, Elma Guðmundsdóttir, Neskaupstað og Björn Magnússon, Eiðum. FRÁ SNÆFELLINGUM Iíéraðsþing HSH var haldið að Breiðabliki í Miklaholtshreppi 12. marz s. 1. Gestir þings- ins voru Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi og Jón F. Hjarlar frá UMFl. Þingforseti var kosinn Stefán Ásgrimsson. Gestir þingsins fluttu báðir ræðu á þinginu. Formaðu Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, Jónas Gestsson, flutti skýrslu stjórnarinnar. Rakti hann helztu störf sambandsins frá siðasta þingi. Tvser unglingaskemmtanir voru haldnar s. 1. sum- ar á vegum HSH, önnur að Breiðabliki og hin í Ólafsvík í samvinnu við UMF Víking. Formaður þakkaði Sigurði Helgasyni fyrir góða og árangursríka þjálfun frjálsíþrótta- fólks sambandsins. Að venju var haldið hér- aðsmót í frjálsum íþróttum og einnig sund- mót. Unglingamót í frjálsum íþróttum var haldið, og einnig knattspyrnumót HSH með tvöfaldri umferð. Keppt var í frjálsum íþróttum við Héraðssambandið Skarphéðinn eins og mörg undanfarin ár. Miklar umræður voru á þinginu um fé' lagsmál, fjármál og íþróttamál o. fl. Kosið var í 7 sérráð, sem starfa innan sambands- ins, en þau eru: Knattspyrnuráð, frjáls- íþróttaráð, sundráð, körfu- og handknatt- Uppliaflega var áformað að 13- landsmótið færi fram fyrstu helgi í júlí, en sú breyting verður á, að það mun fara fram um aðra helgina í þeim mánuði. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.