Skinfaxi - 01.11.1967, Page 19
sjónir ungmennafélaganna og
tengdust þeim.
Fyrrgreindur félagsmálaskóli
væri þannig uppbýggður, að þar
væri minnst um árs nám að ræða,
þannig, að fyrst færi námið fram
í skólanum yfir veturinn en síðan
yrði nemandinn þjálfaður sem
leiðbeinandi á sumardvalarheimili
næsta sumar.
Með slíkum félagsmálaskóla og
slíku starfi yrði leitast við að
glæða ennþá meira hinn félags-
lega anda, sem ungmennafélögin
verða að ala í mjög ríkum mæli, ef
þau eiga að halda sínu aðalsmerki.
Útbreiðslustarfsemi
UMFÍ kanni þegar í stað möguleika
fyrir því að héraðssamböndin og ein-
stök félög verði aðilar að mjög víð-
tækri útbreiðslustarfsemi bæði í
hljóðvarpi og sjónvarpi. Hljóðvarps-
háttinn mætti t. d. hafa í svipuðu
tormi og kaupstaða- og sýslukeppnir
hafa áður verið. Sjónvarpsþættir
yrðu gerðir um starfsemi félaganna,
°g jafnvel byggðir upp sérstakir
þættir þar sem félögin legðu ýmislegt
af mörkum. Uppbygging slikra þátta
væri vissulega mjög þroskandi við-
fangsefni og jafnhliða eitt mesta út-
breiðslutæki sem nútíma þjóðfélag
hefur upp á að bjóða.
Með samstilltum vilja ungmenna-
fólaganna í landinu til þess að byggja
LlPP slika hljóðvarps- og sjónvarps-
áagskrá nær hreyfingin á mjög virk-
an hátt inn á öll heimili í landinu, og
bá getur þjóðin öll fylgzt með því
sterfi og þeim verkefnum og hug-
sjónum sem ungmennafélögin eru
byggð á.
SKINFAXI
25. þing UMFÍ.
Framh. af 6. síðu
ingaskála UMFÍ, Þrastarlundi í Þrast-
arskógi.
Sambandsstjóri sr. Eiríkur J. Ei-
ríksson kvaddi sér hljóðs og þakkaði
það mikla traust sem honum hefði
verði sýnt með því að kjósa hann
forseta hreyfingarinnar enn á ný,
en nú mundi senn líða að því að hann
léti af þeim starfa. Þá flutti sr. Eirík-
ur Ármanni Péturssyni þakkir fyrir
gott samstarf og mikið starf er hann
hefur látið UMFl í té. Sambandsstjóri
flutti fundarmönnum þakkir svo og
starfsmönnum þingsins. Ármann Pét-
ursson flutti þakkir samstarfsmönn-
um og flutti árnaðaróskir samtökun-
um til heilla.
Jón Guðmundsson 2. þingforseti
flutti þakkir til fundarmanna. 1.
þingforseti gaf Hafsteini Þorvalds-
syni orðið er flutti Ármanni Péturs-
syni þakkir fyrir samstarf þeirra
einkum þó, hans miklu vinnu í sam-
bandi við endurreisn Þrastaskógar.
Guðmundur Sigurðsson flutti
þakkir fyrir hönd þingheims vegna
allra þeirra fyrirgreiðslna er fulltrú-
ar hefðu hlotið á þessu þingi.
1. þingforseti Stefán Jasonarson
flutti því næst þakkir til starfsmanna
þingsins og allra fundarmanna og þá
fyrst og fremst fráfarandi stjórn fyr-
ir frábærlega vel undirbúið þing; hús-
ráðendum öllum og gestgjöfum. Ósk-
aði Stefán þess að í Þrastariundi
mætti ungmennafélagshreyfingin
dafna á ókomnum árum. Þá óskaði
Stefán fundarmönnum góðrar heim-
ferðar og sleit 25. sambandsþingi
UMFÍ.
19