Skinfaxi - 01.11.1967, Qupperneq 26
það Iþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi,
sem stofnað var í fyrravetur.
Gestur Guðmundsson sambandsformaður
setti þingið. Þingforsetar voru Sigurður
Geirdal og Jón M. Guðmundsson, og ritarar
Björgvin Guðmundsson og Guðmundur
Þórðarson.
Formaður sambandsins og framkvæmda-
stjóri þess Sigurður Skarphéðinsson fluttu
skýrslur yfir starfsemi sambandsins á árinu,
sem var með mesta móti. Tekin var upp
keppni í nýjum greinum, fyrir forgöngu
sambandsins.
Sambandið réði framkv.stj. á síðasta sumri,
sem gaf góða raun, og var ákveðið á þing-
inu að ráða framkv.stj. á næsta ári. Aðal-
mál þingsins voru íþróttamálin, og var lögð
áherzla á að senda þátttakendur á næsta
landsmót í sem flestum greinum iþrótta og
starfsíþrótta. Þá var mikið rætt um fjár-
hagsmálin, sérstaklega með tilliti til ráðn-
ingu framkv.stj. og í þeim efnum var ákveð-
ið að leita til bæja- og sveitastjórna á sam-
bandsvæðinu um framlag sem svaraði laun-
um hans, þvi starf hans kæmi til með að
virka inn í öll sambandsfélögin i umdæm-
inu.
Stjórn sambandsins er þannig skipuð:
Formaður Gestur Guðmundsson Kópavogi,
varaformaður Þórir Hermannsson.
Aðrir í stjórn:
Sigurður Skarphéðinsson, Birgir Guð-
mundsson, Stefán Ágústsson, Jón Tryggva-
son, Hallgrímur Sigurðsson.
Glímusamband Islands og sjónvarpið hafa
að undanförnu átt viðræður um glímukeppni
í sjónvarpinu. Sjónvarpið óskar eftir að hér
verði um sveitakeppni að ræða — fimm
manna sveitir — og hefur Glímusambandið
fallist á það fyrirkomulag og ennfremur, að
þeir aðilar, sem þátt taki í keppninni verði
eftirtaldir sjö aðilar: Vestfirðingafjórðung-
ur, Norðlendingafjórðungur, Austfirðinga-
fjórðungur og Sunnlendingafjórðungur og
Reykjavíkurfélögin: Ármann, K.R. og Vík-
Sjónvarpið hefur ákveðið að gefa verð-
launagrip til keppninnar, það mun einnig
greiða ferðakostnað glímumanna.
Glímusambandið leggur áherzlu á, að þeir
glímumenn einir, sem eru í góðri æfingu,
komi til greina sem þátttakendur, og hafi
þeir að baki sér a. m. k. 15 æfingar eða
æfingatíma á þessum vetri.
Glímusambandið hefur i hyggju að skipa
trúnaðarmenn í hverjum fjórðungi og í
Reykjavík og skulu þeir sjá um, að settum
skilyrðum sé framfylgt við val i hverja
sveit t. d. varðandi glímuhæfni og æfingu,
og að glimukennarar fylli út æfingarskrár,
svo hægt verði að fylgjast með hvernig
hver og einn hefur stundað æfingar.
Reglugerð verður samin fyrir þessa keppni
og verður hún send öllum aðilum. Æskilegt
er að fjórðungsglímunum verði hraðað eftir
því sem kostur er, svo þær geti orðið eins-
konar útökumót fyrir þessa væntanlegu
sveitaglímukeppni sjónvarpsins.
Það eru tilmæli Glímusambandsins, að
stjórnir glímuráðanna (héraðssambandanna)
taki þetta mál til athugunar og hvetji
glímumenn innan sinna vébanda til æfinga.
Við þurfum að vera samtaka um, að þessi
glímukeppni i sjónvarpinu takist vel og
verði íþróttinni til framdráttar og glímu-
mönnum til sóma.
26
SKINFAXI