Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 8
ÞÓRODDUR JÓHANNSSON: Hreppakeppni UMSE Á ársþingi Ungmennasambands Eyja- fjarðar í febrúar 1967, kom Páll Garð- arsson formaður Ungmennafélagsins Ársól Öngulstaðahreppi, með þá hug- mynd að efna til spurningakeppna milli sveitarfélaga á sambandssvæðinu. Náði þessi hugmynd þegar miklu fylgi og var samþykkt samhljóða að hefja keppnina með haustdögum. Um mán- aðarmótin október-nóvember sl. hófst svo keppnin, milli hinna 13 sveitar- félaga á sambandssvæðinu, ásamt Ólafs fjarðarkaupstað. Urðu keppnirnar því alls sjö og lauk þeim öllum fyrir ára- mót. Þrír keppendur voru frá hverjum hreppi, fengu 10 spurningar til úrlausn- ar og voru margar þeirra í fleiri en einum lið. — I febrúar hófst svo önnur umferð, en í byrjun maí var úrslita- keppnin háð. Lauk henni með sigri Dalvíkurhrepps á móti Árskógshreppi. Yfirleitt voru keppnirnar tvísýnar og skemmtilegar, en álit manna það, að Dalvíkingar hafi unnið réttlátan sigur. I sveit þeirra voru: Helgi Þorsteinsson, Vilhjálmur Björnson og Tryggvi Jóns- son. I sambandi við þessar keppnir voru alltaf önnur skemmtiatriði, svo sem einsöngur, kvartettsöngur, fimleikar, danssýningar, leikþættir, gamanvísur, upplestur, bingó og venjulega var dans Stúlkur af Arskógsströnd sýndu íslcnzka þjóðbúninga. 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.