Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1968, Side 14

Skinfaxi - 01.07.1968, Side 14
knattleiksmenn UMSS góðum árangri, en komust ekki í úrslit landsmótsins. Sundfólkið stóð sig með prýði og vann Meistaramót Norðurlands í sundi í sjötta skiptið í röð og þar með Fisk- iðjubikarinn til eignar. Frjálsíþrótta- fólkið sýndi einnig dugnað í keppni. Þá kom fram, að Skúlanefnd hefur unnið að því að komið yrði upp minnis varða um Skúla Magnússon fógeta við hinn gamla bústað hans að Stóru- Ökrum. Guðmundur Guðmundsson var kjör- inn íþróttamaður ársins. Afhenti for- maður honum hinn fagra verðlauna- grip Samvinnutrygginga. Þá voru veitt verðlaun fyrir sveita- keppni í skák og hraðskákmót. Sveit Umf. Tindastóls sigraði í sveitakeppn- inni en Pálmi Sighvatsson í hraðskák- mótinu. Sambandið stóð að hátíðahöldum á Sauðárkróki 17. júní ásamt Umf. Tindastóli og Sauðárkróksbæ. Var þá m. a. keppt í frjálsum íþróttum, knatt- spymu og sundi. Unglingadansleikur var í Bifröst og síðan almennur dans- leikur um kvöldið .Jón Ormar Orms- son var fulltrúi UMSS í þjáðhátíðar- nefndinni. Ingimundur Ingimundarson annað- ist íþróttakennslu hjá ungmennafélög- unum á vegum UMSS, bæði í frjálsum íþróttum og handknattleik. Auk þess kenndi Guðmundur Harðarson sund um nokkra daga skeið hjá Umf. Tinda- stóli og Umf. Fram. Ýmsir aðrir önn- uðust einnig sundþjálfun. Erlendur Sigþórsson sá um þjálfun knattspyrnu- liðs sambandsins. Þórarinn Guðmunds- son hefur undanfarið verið aðalþjálfari í körfuknattleik. Gestur Þorsteinsson hlaut Blöndals- bikarinn fyrir bezta afrek í frjálsum íþróttum (langstökk 6,82 m, 782 stig) og Guðrún Pálsdóttir Blöndalsbikarinn fyrir sund (100 m bringusun 1.31,5 mín. 653 stig). Á liðnum vetri var haldið skíðanám- skeið á Sauðárkróki á vegum Umf. Tindastóls og skólanna þar. Kennari var Gunnar Guðmundsson frá Siglu- fiiiði. Skíðafelag Fljótamanna hefur annars haldið uppi hróðri Skagfirð- inga í skíðaíþróttinni með ágætri frami stöðu, t. d. varð Trausti Sveinsson tvö- faldur Islandsmeistari í göngu (15 km. og 30 km.). Héraðsmót í frjálsum íþróttum var haldið 11. og 12. ágúst. Umf. Höfð- strendingur vann stigakeppnina, hlaut 90 stig og hlaut Héraðsmótsbikarinn, sem gefinn er af Lionsklúbbi Sauðár- króks. UMSS sigraði í þriggja sambanda keppni sem fram fór á Hvammseyrum í Langadal 3. september með 168 stig. USAH hlaut 113(4 stig og USVH 92 stig. Héraðssundmót var á Sauðárkróki 29. og 30. júlí. Umf Tindastóll sigraði í stigakeppninni. Birgir Guðjónsson hlaut Grettisbikarinn í 4. sinn, en Sig- urlína Hilmarsdóttir hlaut Bringusunds styttuna fyrir sigur í 200 m. bringu- sundi kvenna. Aldursflokkamót í sundi var haldið 14. júlí. Skagfirzkt íþrótta- fólk tók þátt í allmörgum íþróttamót- um utan héraðs. Niðurstöðutölur efnahagsreiknings UMSS fyrir 1967 eru kr. 67.421,- og rekstrarreiknings kr. 132.835,- Þingið lagði áherzlu á að undirbúa vel þátttöku sambandsins í landsmót- inu á Eiðum í sumar. Þá var einnig á- kveðið að hefja undirbúning 14. lands- 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.