Skinfaxi - 01.07.1968, Page 18
an verði haldið mót á Laugum 1. sept.
sem boðið sé til keppendum frá öðrum
héraðssamböndum.
Aðalfundur HSÞ leggur til að íþrótta-
félaginu Völsungi verði falið að sjá um
héraðsmót HSÞ á skíðum veturinn
1968—1969. Ennfremur leggur nefnd-
in til að ráðamenn Laugaskóla stuðli
að eflingu skíðaíþróttarinnar meðal
nemenda.
Eftirfarandi frjálsíþróttamót voru
ákveðin: Héraðsmót HSÞ 27. — 28.
júlí og unglingakeppni HSÞ 18. ágúst.
Ur stjórn sambandsins áttu að ganga
þeir, Óskar Ágústsson, Stefán Kristjáns
Sigþór Hjörleifsson HSH varpaði kúlunni
15.00 m.
son og Arngrímur Geirsson og voru
þeir allir endurkosnir. Stjórn HSÞ er
þannig skipuð: Óskar Ágústsson, for-
maður, Vilhjálmur Pálsson varafor-
maður, Sigurður Jónsson ritari, Arn-
grímur Geirsson gjaldkeri og Stefán
Kristjánsson meðstjórnandi.
(Fréttaritari HSÞ).
Héraðssamband
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
Héraðssamband Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu hélt ársþing sitt 12.
maí sl. I starfsskýrslu stjórnarinnar
fyrir árið 1967 eru m. a. eftirfarandi
upplýsingar:
Sérráð eru starfandi innan sam-
bandsins í hinum ýmsu íþróttagrein-
um, knattspyrnuráð, frjálsíþróttaráð,
sundráð, körfu- og handknattleiksráð,
skákráð, starfsíþróttaráð og glímuráð.
Þrjár æskulýðsskemmtanir voru
haldnar á árinu. Voru þær nokkuð vel
sóttar og fóru vel fram .Reynt var að
vanda vel til þessarra skemmtana bæði
með því að fá góðar hljómsveitir og
aðra góða skemmtikrafta. Á þessum
skemmtunum voru einnig flutt ávörp
um bindindismál. Auk þess voru haldn-
ir almennir dansleikir í sambandi við
flest íþróttamót.
Guðmundur Símonarson íþrótta-
kennari starfaði á vegum HSH og ferð-
aðist milli félaga og leiðbeindi eftir því
sem aðstæður leyfðu. Sigurður Helga-
son skólastjóri sá um og leiðbeindi á
æfingum frjálsíþróttafólks, sem haldn-
ar voru einu sinni í viku. Auk þess
skipulagði hann og stjórnaði flestum
frjálsíþróttamótum, sem haldin voru
á vegum sambandsins. Hrefna Markan
íþróttakennari annaðist æfingar sund-
18
SKINFAXI