Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 19
fólks. Már Sigurðsson íþróttakennari
kenndi glímu ásamt Sveini Guðmunds-
syni.
A vegum HSH voru haldin 6 frjáls-
íþróttamót á árinu, auk þess sem hér-
aðakeppni HSH og HSK fór fram á
vegum HSH að þessu sinni. Þá eru ó-
talin mót, sem einstök félög innan HSH
stóðu fyrir, og auk þess var HSH þátt-
takandi í Bikarkeppni FRÍ og Meistara
móti íslands. íþróttafélag Miklaholts-
hrepps varð stigahæst á héraðsmótinu.
Sex knattspyrnulið frá fimm félög-
um tóku þátt í Knattspyrnumóti HSH
1967. A-lið Umf Víkings í Ólafsvík og
lið Umf Snæfells í Stykkishólmi hlutu
bæði 9 stig á mótinu. Kepptu liðin síð-
an til úrslita á Hellissandi, og sigraði
Umf Víkingur 2:0, og hlaut þar með
HSH-bikarinn til varðveizlu næsta ár-
ið.
HSH tók þátt í 3. deildar keppni KSl.
HSH varð nr. 2 í sínum riðli á eftir
FH. Þá tók HSH þátt í forkeppni lands-
móts UMFl. Komst liðið í undanúr-
slit en ekki í sjálfa úrslitakeppnina.
Þá var tekin upp sú nýbreytni að
efna til knattspyrnukeppni fyrir pilta
14 ára og yngri. Tóku 4 félög þátt í
keppninni og sigraði lið Umf Víkings.
Hörður Felixson gaf bikar til þessarar
keppni.
HSH tók þátt í 1. sveitakeppni UMFÍ
í skák, sem háð var að Leirá í Borgar-
firði í maímánuði. HSH bar sigur úr
býtum í keppninni, sigraði UMSK með
4i/2:i/2 og HSK með 3i/2:li/2. Sigur-
sveit HSH skipuðu: Ingimar Halldórs-
son, Gylfi Scheving, Ólafur Kristjáns-
son, Jenni Ólason, Einar Hallsson og
varamaður var Steinþór Guðmunds-
son.
Glímumót Vestfirðingafjórðungs var
haldið í Stykkishólmi 8. apríl 1967. —
Sigurvegari var Sveinn Guðmundsson.
I unglingaflokki sigraði Þórður Frið-
jónsson. Sveinn vann bikar þann, sem
keppt er um í annað sinn. HSH átti
keppendur bæði í Landsflokkaglímunni
og í Islandsglímunni, en þar varð
Sveinn Guðmundsson í öðru sæti.
Héraðsmót HSH í sundi var haldið
í Kolviðarnesslaug. Umf Snæfell varð
stigahæst.
Körfuknattleikur á vaxandi vinsæld-
um að fagna í héraðinu. Héraðsmót var
haldið í Stykkishólmi. Umg Snæfell
sigraði, en það lið tók einnig þátt í 2.
deild Islandsmótsins og í Bikarkeppni
KKl.
Innan vébanda HSH voru þessar í-
þróttir iðkaðar 1967:
íþróttagrein Iðkendur
Knattspyrna 186
Frjálsar íþróttir 165
Sund 94
Körfuknattleikur 81
Handknattleikur 42
Glíma 19
Badminton 17
Skautaíþrótt 10
Skíðaíþróttir 10
Róður 7
Ungmennasamband
Borgarfjarðar
I Borgarfirði hefur verið komið af stað
víðtæku og ánægjulegu starfi fyrir hina
yngstu. Stjórn UMSB hefur samið sér-
staka reglugerð um öll mót á vegum
sambandsins í frjálsíþróttum, knatt-
leikjum og sundi. Samkvæmt hinum
nýju reglum er lögð áherzla á skipt-
ingu í aldursflokka, og er skiptingin
frá hámarksaldri drengjaflokks með
SKINFAXI
19