Skinfaxi - 01.07.1968, Síða 20
Þátttakendur í hinu fjölmenna frjálsíþróttamóti hinna yngstu að Leirárskóla.
tveggja ára bili, en yngsti flokkurinn
er 12 ára og yngri. Skiptingin nær
jafnt til stúlkna og pilta. Þessi skipt-
ing gildir um frjálsíþróttir og sund, en
í knattleikjum er skipt í tvo aldurs-
flokka.
Tilgangurinn með skiptingunni er
ekki sízt sá, að fá sem almennasta
þátttöku í íþróttamótum á vegum sam-
bandsins. Það er þegar komið í ljós, að
þessi skipulagning gefst vel. Fyrsta
frjálsíþróttamótið skv. þessum reglum
var háð að Leirárskóla 8. — 9. júlí. 6
ungmennafélög tóku þátt í mótinu og
voru keppendur hvorki meira né
minna en 167. Keppendur gistu í skól-
anum. Að kvöldi fyrri keppnisdags var
kvöldvaka, dans og varðeldur til
skemmtunar fyrir þátttakendur. —
Keppnin gekk mjög greiðlega. Félögin
höfðu ótakmarkaða þátttöku, og var
beinlínir óskað eftir sem flestum kepp-
endum, en félögunum ekki skömmtuð
hámarksþátttaka í hverri grein. Sigur-
vegarar í einstökum greinum urðu:
SVEINAR:
100 m. hl.: Einar Ólafss. Tómas Jónss, Sk 13,2
Hástökk: Einar Ólafsson, Sk 1,55
Kúluvarp: Pétur Jónsson, Sk 12,89
Spjótkast: Pétur Jónsson, Sk 42,05
Langstökk Asbjörn Sigurgeirsson Sk 5,24
Þrístökk: Einar Ólafsson Sk 11,05
Kringlukast: Steinar Ragnarsson Sk 25,60
800 m. hl.: Einar Ólafsson 2.15,8
JUNIORAR: 13-14 ára
100 m hl.: Birgir Huks. H. Einar Lofts. Sk 13,8
Hástökk: Birgir Hauksson (H) 1,35
Kúluvarp: Birgir Hauksson (H) 11,20
Spjótkast: Þorvaldur Jónsson (í) 31,60
Langstökk: Birgir Kristinsson (H) 4,71
Þrístökk: Birgir Hauksson (H) 10,45
ICringlukast: Birgir Hauksson (H) 25,98
800 m. hl.: Birgir Hauksson (H) 2.34,8
12 ÁRA OG YNGRI:
100 m. hl.: Guðm. Guðmundsson (Sk) 15,4
Hástökk: Rúnar Vífilsson (H) 1,20
Kúluvarp: Þórarinn Eldjárnsson (Sk) 7,56
Kringlukast: Þórarinn Eldjárnsson (Sk) 19,10
Langstökk: Sumarliði Aðalsteinsson (Sk) 3,39
800 m hh: Ólafur Helgason (Sk) 3.06,0
20
SKINFAXI