Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 23
2. Sjónvarp.
Vikulega, þ. e. á föstudögum, verða
nokkrar myndir sýndar frá stöðum sem
hafa verið skemmdir eða þar sem sóða-
skapur er yfirþyrmandi og mun frétta-
maður flytja viðeigandi varnaðarorð.
3. Dagblöðin.
Vikulega, þ. e. föstudögum, munu dag-
blöðin birta mynd frá illa meðförnum
stað ásamt viðeigandi texta, en þetta
verður rammað inn og þar með gert
meira áterandi.
Þetta þrennt er það sem lítur að fjöl-
miðlunartækjunum. Aðrir aðalþættir
herferðarinnar eru:
a) Áminningarspjald.
Spjald með minningu um náttúruvernd
mun verða dreift á langtum flestar
benzínstöðvar í landinu, kaupfélög og
útibú, Hótel og veitingasölur um allt
land.
b) Áminningarbæklingur.
Bæklingur um þetta efni hefur ver-
ið gefinn út. Gerð hans hafa nokkr-
ir innflytjendur jeppabifreiða stutt
fjárhagslega. Hann er áminning til allra
bílstjóra, en þó sérstaklega jeppaeig-
enda, og þeim sendur, um að aka var-
lega um byggðir og óbyggðir landsins
og þar með forða náttúruspjöllum, því
eins og segir í bæklingnum: ,,I okkar
harðbýla landi er gróðurinn afar seinn
að taka við sér, sérstaklega til heiða og
f jalla og á einum degi má gera að engu
margra alda uppbyggingu náttúrunn-
ar í gróðurfari landsins. Til jarðrasks
af völdum ökutækja má einnig stund-
um rekja upphafið að uppblæstri og
j ar ðvegseyðingu. “ V átryggingarf élög-
in flest, hafa verið svo vinsamleg að
taka að sér að senda þeim jeppaeigend-
um, sem hjá þeim tryggja bækling
þennan.
c) Mjólkurbúðamiði.
Mjólkursamsalan í Reykjavík hefur
verið svo vinsamleg að veita aðstand-
endum herferðar þessarar mikilvægan
stuðning með því að kosta gerð sér-
staks ,,mjólkurbúðamiða,“ sem hvatn-
ingu til allra um að fleygja ekki um-
búðum á víðavangi.
Efnt var til samkeppni um merki
fyrir herferðina innan Myndlista- og
handíðaskólan Islands. Fyrir valinu
varð merki sem Rósa Ingólfsdóttir
teiknaði.
Ljósmyndari herferðarinnar er Krist
inn Helgason kortagerðarmaður. Aðal-
textahöfundar þeir Gestur Guðfinns-
son blaðamaður og Ólafur B. Guð-
mundsson lyfjafræðingur. Teiknun og
umsjón með prentun hefur Auglýsinga
stofa Gísla B. Björnssonar annazt. All-
an undirbúning annan hefur skrifstofa
Æskulýðssambandsins séð um í sam-
ráði við Ingva Þorsteinsson magister.
SKINFAXI
23