Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1973, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.08.1973, Blaðsíða 3
SKINFAXI Tímarit Ungmennafélags íslands — LXIV. árgangur — 4. hefti 1973 — Ritstjóri Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á á:i hverju. Félagsmálaf ræðsla Ungmennafélaganna Nú líður að þeim tíma að félagsstarf hefst af auknum krafti hjá ungmennafélögunum vítt um land eftir annir sumars og hausts. Einn er sá starfsliður sem því er vert að hugleiða nokkuð. Það er einmitt sá þáttur félagsstarfsins að fræða og þjálfa félagana. Mikil nauðsyn er að hunsa ekki þennan starfs- iið, því um er að ræða grundvöll starfsins. Ef ekki er séð um að uppfræða unga sem aldna félaga, er ekki að vænta endurnýjunar Þess krafts sem félagsstarf I frjálsu félagi hyggist á. Ekki kann það góðri lukku að stýra a<5 eilíflega sé treyst á forystu gamalla og 9róinna forsvarsmanna. Maður kemur i manns stað, þess vegna hlýtur að vera höfuð nauð- sýn að tryggja þjálfun og fræðslu nýrra félaga °9 viðhalda hæfni félaganna almennt. Á undanförnum árum hefur UMFl lagt mikla éherslu á fræðslustarf, var stofnaður Félags- málaskóli UMFÍ sem haft hefur fjölmörg nám- skeið hjá ungmennafélögum. Eftir tilkomu ÆskulýSsráðs rlkisins hóf UMFÍ samstarf á þeim vettvangi við önnur félagasamtök um gerð námsefnis sem henta mundi til fræðslu í almennum félögum. Nú hafa verið haldin námskeið fyrir kenn- ara og eru margir þeirra úr röðum ungmenna- félaganna, enda voru á síðasta vetri haldin fjölmörg námskeið með hinu nýja kennsluefni hjá ungmennafélögunum um land allt. Óhætt er að fullyrða að námskeið þessi hafa hleypt nýju lífi I starf þeirra félaga sem fræðslu hafa notið. En betur má ef duga skal. Nú þurfa félög að kappkosta að veita meðlimum sinum tækifæri að sækja námskeið til þess að öðlast sjálfs- vitund og hæfni sem traustir hlekkir í hinnl miklu félagskeðju. Þannlg mun framtið ung- mennafélaganna best borgið, að til séu ötulir og fróðir félagar sem öruggir geta gengið til forustustarfa og tekist á við vanda líðandl stundar og komandi tíðar. Gerum stórt átak á sviði fræðslumála á kom- andi vetri. G. G skinfaxi 3

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.